Fræðsluráð

20. fundur 18. nóvember 2019 kl. 13:30 - 15:00 Glerárskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Ellý Dröfn Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra sat fundinn í forföllum Jakobínu Elínar Áskelsdóttur.

1.Leikskólabygging við Glerárskóla

Málsnúmer 2017120010Vakta málsnúmer

Guðríður E. Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu mála við hönnun leikskóla á lóð Glerárskóla.

2.Reglur um leikskólaþjónustu

Málsnúmer 2018020315Vakta málsnúmer

Undir 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar frá 5. nóvember 2019 um ,,reglur um leikskólaþjónustu" var bókað: Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir að vísa reglum um leikskólaþjónustu til frekari úrvinnslu í fræðsluráði.
Meirihluti fræðsluráðs staðfestir reglur um leikskólaþjónustu sem samþykktar voru á fundi ráðsins 28. október 2019 og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Þórhallur Harðarson D-lista greiðir atkvæði á móti.

3.Leikskólar - starfsáætlanir 2014-2020

Málsnúmer 2018040329Vakta málsnúmer

Starfsáætlanir leikskóla Akureyrar fyrir skólaárið 2019-2020 lagðar fram til staðfestingar.

Í 14. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 segir um skólanámskrá og starfsáætlun:

Í hverjum leikskóla skal gefa út skólanámskrá og er leikskólastjóri ábyrgur fyrir gerð hennar. Skólanámskrá er nánari útfærsla á aðalnámskrá leikskóla og felur í sér uppeldis- og námsáætlun leikskóla þar sem markmið eru sett og skilgreindar leiðir að þeim markmiðum. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu skóla og skólastefnu viðkomandi sveitarfélags. Skólanámskrá skal endurskoða reglulega.



Leikskólastjóri gefur árlega út sérstaka starfsáætlun. Í starfsáætlun er gerð grein fyrir árlegri starfsemi leikskóla, svo sem skóladagatali og öðru því sem varðar starfsemi leikskólans.



Skólanámskrá og starfsáætlun skulu staðfestar af nefnd skv. 2. mgr. 4. gr., að fenginni umsögn foreldraráðs og skulu þær kynntar foreldrum."
Fræðsluráð staðfestir starfsáætlanir leikskólanna fyrir skólaárið 2019-2020.

4.Yfirlit um yfirvinnu stofnana á fræðslusviði

Málsnúmer 2018100120Vakta málsnúmer

Staða yfirvinnu fræðslusviðs lögð fram til kynningar.

5.Fundaáætlun fræðsluráðs 2020

Málsnúmer 2019110153Vakta málsnúmer

Tillaga að fundaáætlun fyrir árið 2020 lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð samþykkir fundaáætlun fræðsluráðs fyrir árið 2020.

6.Frístund

Málsnúmer 2017050214Vakta málsnúmer

Á fundi frístundaráðs þann 11. nóvember 2019 var gerð svohljóðandi bókun:

Til umræðu starfsemi frístundar í tengslum við verkefnið samfelldur vinnudagur barna.

Frístundaráð óskar eftir áliti fræðsluráðs á þeirri hugmynd að umsjón með frístund verði færð frá fræðslusviði yfir til samfélagssviðs.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að kanna kosti og galla við hugsanlega skipulagsbreytingu í samráði við samfélagssvið.

7.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022

Málsnúmer 2019110081Vakta málsnúmer

Eyrún Skúladóttir skólastjóri Glerárskóla kynnti skólastarfið og sýndi húsakynni.

Fundi slitið - kl. 15:00.