Fræðsluráð

11. fundur 03. júní 2019 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi V-lista boðaði forföll. Varamaður mætti ekki til fundar.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar.

1.Endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Sigríður Ingadóttir frá Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri kom á fundinn og leiddi vinnu og umræður um framtíðarsýn í skólamálum Akureyrarbæjar. Verkefnið er hluti af endurskoðun skólastefnu bæjarins og þeirri vinnu sem nú þegar hefur verið innt af hendi.

2.Ráðning skólastjóra Oddeyrarskóla

Málsnúmer 2019050386Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir ráðningu skólastjóra Oddeyrarskóla.

Þrjár umsóknir bárust um starfið.

Að höfðu samráði við fræðsluráð var Anna Bergrós Arnarsdóttir ráðin skólastjóri Oddeyrarskóla frá 1. ágúst 2019.

3.Útboð á ritföngum og námsgögnum

Málsnúmer 2018120119Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir niðurstöðu sameiginlegs örútboðs Ríkiskaupa vegna gjaldfrjálsra námsgagna. Tíu önnur sveitarfélög tóku þátt í útboðinu. Eitt tilboð barst frá Pennanum og var hlutur grunnskólanna á Akureyri kr. 8.735.065.

Málið lagt fram til kynningar.

4.Skólavogin 2018

Málsnúmer 2018030274Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri lagði fram til kynningar niðurstöður úr nemendahluta Skólavogarinnar fyrir skólaárið 2018-2019.

5.Nútímavæðing í skólum

Málsnúmer 2017080076Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram til kynningar minnisblað um stöðu upplýsingatækni í leik- og grunnskólum. Tillaga að skiptingu á sérstöku framlagi til eflingar upplýsingatækni lögð fram.
Fræðsluráð staðfestir framlagða tillögu að skiptingu fjármagns til eflingar upplýsingartækni.

6.Rekstur fræðslumála 2019

Málsnúmer 2019030196Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu fjóra mánuði ársins 2019.

Fundi slitið - kl. 15:45.