Fræðsluráð

10. fundur 20. maí 2019 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir L-lista mætti í forföllum Hildar Bettyar Kristjánsdóttur.

1.Endurskoðun skólastefnu 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram til kynningar fundargerðir stýrihóps um endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar.

2.Brúum bilið - vinnuhópur

Málsnúmer 2018120163Vakta málsnúmer

Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður starfshópsins Brúum bilið gerði grein fyrir gangi vinnunnar í hópnum og fundargerðir lagðar fram til kynningar.

3.Skólahald í Grímseyjarksóla

Málsnúmer 2019050385Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram minnisblað um stöðu skólahalds í Grímsey.
Fræðsluráð samþykkir að fella niður skólahald í Grímseyjarskóla tímabundið veturinn 2019-2020 meðan ekki eru fleiri nemendur skráðir í skólann en gera jafnframt ráð fyrir að sú ákvörðun verði endurskoðuð fyrri hluta árs 2020 fyrir skólaárið 2020-2021. Skólaganga þess nemanda sem skráður er í skólann myndi þá falla undir samþykktar reglur um skólagöngu nemenda í 9. og 10. bekk í Grímsey.



4.Fundaáætlun fræðsluráðs 2019

Málsnúmer 2018120120Vakta málsnúmer

Tillaga að fundaáætlun fræðsluráðs fyrir tímabilið ágúst - desember 2019 lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir fyrirliggjandi fundaáætlun.

5.Glerárskóli - áskorun og fyrirspurn frá starfsmönnum

Málsnúmer 2019040241Vakta málsnúmer

Guðríður Sigurðardóttir og Guðrún Þóra Björnsdóttir komu í viðtalstíma bæjarfulltrúa fyrir hönd starfsfólks Glerárskóla þann 11. apríl 2019 og afhentu bréf frá starfsfólki sem varðar framtíðarskipulag skólastarfs.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að svara erindinu.

6.Árholt - endurbætur

Málsnúmer 2019050405Vakta málsnúmer

Fyrirhugaðar endurbætur á Árholti lagðar fram til kynningar og afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir að farið verði í nauðsynlegar endurbætur á Árholti til að starfsemi geti hafist þar í haust og beri jafnframt lausafjárleigu vegna þess.

Erindinu er vísað til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

7.Kynning á starfsemi skólaþjónustu Akureyrarkaupstaðar

Málsnúmer 2018080145Vakta málsnúmer

Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður skólaþjónustunnar kom á fundinn og fór yfir starfsemina á skólaárinu.

Fundi slitið - kl. 15:45.