Fræðsluráð

4. fundur 18. febrúar 2019 kl. 13:30 - 15:10 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson varaformaður
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista og varamaður hennar boðuðu forföll.
Einar Gauti Helgason V-lista mætti í forföllum Þuríðar Sólveigar Árnadóttur.

1.Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga

Málsnúmer 2018110171Vakta málsnúmer

Samkvæmt jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar skal hvert ráð velja sér þróunarleiðtoga jafnréttismála sem hefur m.a. það hlutverk að vera formlegur málsvari kynjasamþættingar í starfi viðkomandi ráðs.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða að Heimir Haraldsson verði þróunarleiðtogi jafnréttismála.

2.Þriggja mánaða skýrsla - fræðslusvið

Málsnúmer 2018100120Vakta málsnúmer

Yfirlit um stöðu yfirvinnu innan fræðslusviðs í desember 2018 og janúar 2019 var lagt fram til kynningar.

3.Skóladagatal leik- og grunnskóla 2019-2020

Málsnúmer 2019010117Vakta málsnúmer

Samkvæmt verklagsreglum fræðsluráðs vegna staðfestingar skóladagatals skal fræðsluráð ákveða ár hvert:

1. Skólasetningardag allra grunnskóla.

2. Sameiginlega leyfisdaga allra grunnskóla.
Fræðsluráð samþykkir að skólasetningardagur grunnskólanna árið 2019 verði 22. ágúst og sameiginlegt haustfrí verði 17. og 18. október.

4.Þjónustukönnun Gallup 2018 - kynning í ráðum

Málsnúmer 2019020200Vakta málsnúmer

Í nóvember og desember 2018 gerði Gallup þjónustukönnun í 19 stærstu sveitarfélögum landsins. Tilgangurinn var að kanna ánægju með þjónustu í sveitarfélögunum, gera samanburð og skoða breytingar frá fyrri mælingum. Könnunin náði til 9.861 íbúa, 18 ára og eldri skv. lagskiptu úrtaki. Á Akureyri svöruðu 785.
Niðurstöðurnar voru lagðar fram til kynningar.

5.Kynningaráætlanir sviða 2019

Málsnúmer 2019020253Vakta málsnúmer

Samkvæmt upplýsingastefnu Akureyrarbæjar skulu svið leggja fram kynningaráætlun fyrir 1. mars ár hvert.

Fræðsluráð samþykkir kynningaráætlun fræðslusviðs fyrir árið 2019.

6.Búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2019

Málsnúmer 2019020272Vakta málsnúmer

Listi yfir búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2019 var lagður fram.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna búnaðarkaupa og endurbóta.

Fundi slitið - kl. 15:10.