Fræðsluráð

2. fundur 21. janúar 2019 kl. 13:30 - 15:54 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Einar Gautur Helgason V-lista mætti í forföllum Þuríðar Sólveigar Árnadóttur.
Ellý Dröfn Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólakennara boðaði forföll.

1.Umbætur í leikskólum - bréf frá skólastjórum

Málsnúmer 2019010098Vakta málsnúmer

Erindi frá skólastjórum leikskóla Akureyrarbæjar lagt fram til umræðu.

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kom á fundinn og fylgdi málinu úr hlaði.
Vinna er nú þegar hafin við að afla gagna um rými í leikskólum.

Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að vinna málið áfram og svara erindinu.

2.Reglur um leikskólaþjónustu

Málsnúmer 2018020315Vakta málsnúmer

Endurskoðaðar reglur um leikskólaþjónustu lagðar fram til umræðu.

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla sat fundinn undir þessum lið.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar breytingar á reglum um leikskólaþjónustu.

3.Skólasamningur leikskóla - endurnýjun 2019

Málsnúmer 2019010080Vakta málsnúmer

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kynnti breytingar sem gerðar hafa verið á skólasamningi leikskóla.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar breytingar á skólasamningi leikskóla.

4.Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing

Málsnúmer 2014030109Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir og Bryndís Elfa Valdemarsdóttir frá samfélagssviði komu á fundinn og kynntu aðgerðaráætlun við innleiðingu Barnasáttmálans hjá Akureyrarbæ 2019-2021.

5.Eftirfylgd með kennslustundum í list- og verkgreinum

Málsnúmer 2019010099Vakta málsnúmer

Úttekt frá Menntamálastofnun um fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum í grunnskólum Akureyrar lögð fram til kynningar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og gera ráðinu grein fyrir niðurstöðum að því loknu.

6.Skóladagatal leik- og grunnskóla 2019-2020

Málsnúmer 2019010117Vakta málsnúmer

Verklag við gerð skóladagatals leik- og grunnskóla lagt fram til kynningar.

7.Viðurkenningar fræðsluráðs

Málsnúmer 2016010018Vakta málsnúmer

Endurskoðaðar verklagsreglur vegna viðurkenninga fræðsluráðs lagðar fram til kynningar.
Fræðsluráð samþykkir endurskoðaðar verklagsreglur.

Fundi slitið - kl. 15:54.