Fræðsluráð

21. fundur 04. desember 2017 kl. 13:30 - 15:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Anna Rósa Magnúsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Anna Rósa Magnúsdóttir D-lista mætti í forföllum Baldvins Valdemarssonar.
Brynhildur Pétursdóttir Æ-lista boðaði forföll. Varamaður komst ekki í hennar stað.

1.Rekstur fræðslumála 2017

Málsnúmer 2017040126Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður reksturs á fræðslusviði fór fyrir rekstur fyrir tímabilið janúar - október 2017.

2.Nútímavæðing í skólum

Málsnúmer 2017080076Vakta málsnúmer

Samtal um nútímavæðingu í leik- og grunnskólum.

Á opnum kynningarfundi bæjarstjórnar þann 29. nóvember 2017 um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, var kynnt ákvörðun um að setja kr. 20 milljónir á ári næstu þrjú árin til að styðja við nútímavæðingu í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar, samtals 60 milljónir króna.
Fræðsluráð fagnar ákvörðuninni.

3.Leikskólabygging við Glerárskóla

Málsnúmer 2017120010Vakta málsnúmer

Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusvið fór yfir stöðuna á vinnunni.

4.Skólastefna - nýsmíði 2017

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs fór yfir stöðuna í vinnuferlinu.

5.Umsókn um greiðslur til heimadvalar með börnum í stað leikskólaplássa

Málsnúmer 2017120020Vakta málsnúmer

Erindi frá foreldri þríbura sem óskaði eftir að fá greiðslur frá Akureyrarbæ til þess að vera heima með börnin þar til í ágúst 2019, í stað þess að börnin þrjú hefji leikskólagöngu í ágúst 2018.
Fræðsluráð vill leita frekari upplýsinga um málið áður en formleg ákvörðun er tekin.

Fundi slitið - kl. 15:30.