Fræðsluráð

18. fundur 23. október 2017 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Baldvin Valdemarsson
  • Brynhildur Pétursdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Ingunn Högnadóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna boðaði forföll.
Jóhann Gunnarsson, nýr fulltrúi Samtaka, félags foreldrafélaga grunnskóla mætti á sinn fyrsta fund.
Sigurður Freyr Sigurðarson fulltrúi grunnskólakennara boðaði forföll.

1.Skimun fyrir kvíða og þunglyndi barna

Málsnúmer 2017100346Vakta málsnúmer

Alþingi Íslands samþykkti vorið 2016 stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Unnið er að innleiðingu hennar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem meðal annars er stefnt að árvissum skimunum fyrir kvíða og þunglyndi meðal barna og unglinga í samvinnu við grunnskóla og skólaþjónustu á Norðurlandi. Fyrsta skimun beinist að grunnskólanemendum í 5. bekk í Akureyrarbæ og í nærsveitum.

Pétur Maack yfirsálfræðingur á HSN og Aðalheiður Jónsdóttir sálfræðingur á HSN komu á fundinn og sögðu frá fyrirkomulagi á skimuninni í skólum Akureyrarbæjar.
Fræðsluráð fagnar auknu samstarfi HSN og fræðslusviðs á sviði heilbrigðisþjónustu við börn og þakkar fyrir góða kynningu.

2.Skólastefna - nýsmíði 2017

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Vinna við gerð skólastefnu.
Baldvin Valdemarsson D-lista vék af fundi kl. 14:45.

3.Skóli án aðgreiningar

Málsnúmer 2017100221Vakta málsnúmer

Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs fór fyrir yfir helstu niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar á stöðu stefnunnar um skóla án aðgreiningar í íslenskum skólum sem kynnt var á vormánuðum 2017.

Kynning niðurstaðna er samantekt úr skýrslunni Menntun fyrir alla: Úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi.

4.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs

Málsnúmer 2017050044Vakta málsnúmer

Umræða um þriggja ára framkvæmdaáætlun.

Fundi slitið - kl. 15:45.