Fræðsluráð

2. fundur 23. janúar 2017 kl. 13:30 - 15:30 Skrifstofa fræðslustjóra
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Baldvin Valdemarsson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi var fjarverandi.
Kristlaug Svavarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra boðaði forföll.

1.Forvarnamál

Málsnúmer 2017010277Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála og Katrín Ósk Ómarsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi komu á fundinn og fóru yfir skipulag forvarnamála í skólum Akureyrarbæjar.

Fræðsluráð þakkar þeim Ölfu og Katrínu kærlega fyrir góða kynningu.

2.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs og rekstrarstjóra á fræðslusviði að koma umsögnum á framfæri til skipulagsstjóra í samræmi við umræður á fundinum.
Baldvin Valdemarsson vék af fundi kl. 14:40.
Sigurður Freyr Sigurðarson vék af fundi kl. 15:08.

3.Kjarasamningar grunnskólakennara

Málsnúmer 2017010147Vakta málsnúmer

Farið yfir vegvísi við bókanir í kjarasamningnum.

Fundi slitið - kl. 15:30.