Fræðslunefnd

1. fundur 13. maí 2016 kl. 10:00 - 10:15 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagný Magnea Harðardóttir varaformaður
  • Dan Jens Brynjarsson
  • Halldór Sigurður Guðmundsson
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
  • Ingunn Helga Bjarnadóttir fundarritari
Dagskrá
Dan Jens Brynjarsson mætti í fjarveru Ingu Þallar Þórgnýsdóttur formanns.

1.Námsstyrkjasjóður embættismanna - ósk um frestun námsleyfis

Málsnúmer 2015110146Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. apríl 2016 frá Höllu Margréti Tryggvadóttur starfsmannastjóra þar sem hún óskar eftir frestun á töku námsleyfis til haustsins 2017.
Fræðslunefnd samþykkir beiðni Höllu Margrétar.

2.Námsstyrkjasjóður embættismanna - 2016

Málsnúmer 2016050119Vakta málsnúmer

Farið yfir núverandi stöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna.

Lagt til að auglýst verði að nýju eftir umsóknum fyrir námsárið 2016-2017.
Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna fyrir námsárið 2016-2017 og að umsóknarfrestur verði til og með 27. maí 2016.

Fundi slitið - kl. 10:15.