Fræðslunefnd

1. fundur 12. október 2015 kl. 15:00 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir formaður
  • Dagný Magnea Harðardóttir
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri
  • Ingunn Helga Bjarnadóttir fundarritari
Dagskrá

1.Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - staða sjóðsins

Málsnúmer 2012090152Vakta málsnúmer

Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - umræða um stöðu sjóðsins.
Fræðslunefnd ályktar um stöðu Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna.

Um áramótin 2008-2009 var ákveðið að gera tímabundið hlé á fjárveitingu í Námsstyrkjasjóð sérmenntaðra starfsmanna. Fræðslunefnd hefur árlega frá árinu 2010 óskað eftir að fjármagni verði veitt í sjóðinn.

Í Samþykkt um styrki til námsleyfa sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar segir í 1. gr.: Bæjarstjórn Akureyrar vill með samþykkt þessari stuðla að því að efla menntun og þekkingu sérmenntaðra starfsmanna sinna.

Fræðslunefnd ítrekar erindi sitt og skorar á bæjarráð að veita að nýju fjármagni til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.

2.Námsstyrkjasjóður embættismanna - staða haust 2015

Málsnúmer 2014090039Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna haustið 2015.

3.Námsstyrkjasjóður embættismanna - auglýsing haust 2015

Málsnúmer 2014090038Vakta málsnúmer

Umræða um hvort og þá hvenær eigi að auglýsa eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna haustið 2015.
Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa næst eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna í október 2015 fyrir námsárið 2016-2017.

4.Stjórnenda- og starfsmannafræðsla

Málsnúmer 2013020005Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri starfsþróunar kynnti stjórnenda- og starfsmannafræðslu haustsins.

Fundi slitið - kl. 15:45.