Fræðslu- og lýðheilsuráð

18. fundur 17. október 2022 kl. 13:00 - 15:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Arnór Þorri Þorsteinsson
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Tinna Guðmundsdóttir
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson settur sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Arnór Þorri Þorsteinsson L-lista sat fundinn í forföllum Huldu Elmu Eysteinsdóttur.

1.Viðurkenning fræðslu- og lýðheilsuráðs

Málsnúmer 2022090947Vakta málsnúmer

Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir verkefnastjóri grunnskóla kynnti drög að verkferlum og reglum um viðurkenningu fræðslu- og lýðheilsuráðs.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð frestar ákvörðun.

2.Reglur um greiðslur ferðakostnaðar vegna nemenda með lögheimili í Grímsey

Málsnúmer 2022090946Vakta málsnúmer

Drög að reglum um greiðslur á ferðakostnaði vegna nemenda með lögheimili í Grímsey.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð frestar ákvörðun.

3.Breyting á launaáætlun grunnskóla september - desember 2022

Málsnúmer 2022091292Vakta málsnúmer

Vísað til síðari umræðu í fræðslu- og lýðheilsuráði.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir framlagðan viðauka að upphæð kr. 18.300.000 og vísar erindinu til bæjarráðs.

4.Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2026

Málsnúmer 2022060686Vakta málsnúmer

Umræður um fjárhagsáætlun árins 2023.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

5.Samningur um fræðslu

Málsnúmer 2022100497Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samningi við Samtökin '78 um fræðslu til starfsfólks leik- og grunnskóla, nemenda grunnskóla, fræðslu til stjórnenda, ráðgjöf, fræðslu til félags- og frístundamiðstöðva og fræðsla til þjálfara íþróttafélaga.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur jákvætt í fyrirhugað samstarf og felur sviðsstjóra fræðslu- og lýðheilsuráðs að vinna málið áfram.

Málinu er vísað til ungmennaráðs til umsagnar.

6.Nökkvi, félag siglingamanna - rekstrarsamningur um siglingahús

Málsnúmer 2021080462Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að rekstrarsamningi við Nökkva, félag siglingamanna.

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála sat fundinn undir þessum lið.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar til bæjarráðs.

7.Aðgerðaáætlun í málefnum eldra fólks 2022-2026

Málsnúmer 2022090478Vakta málsnúmer

Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs fór yfir stöðu aðgerðaáætlunar í málefnum eldra fólks.

Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:00.