Fræðslu- og lýðheilsuráð

16. fundur 19. september 2022 kl. 12:00 - 14:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Tinna Guðmundsdóttir F-lista mætti ekki til fundar né varamaður hennar og boðuðu ekki forföll.

1.Virk efri ár

Málsnúmer 2022081092Vakta málsnúmer

Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs og Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála kynntu verkefnið Virk efri ár. Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun í málefnum eldra fólks sem samþykkt var í bæjarstjórn í desember 2021.

Áheyrnafulltrúar: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA.

2.Íþróttabandalag Akureyrar - áskorun til bæjaryfirvalda vegna frystingar á rekstrarsamningum íþróttafélaga

Málsnúmer 2022090264Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. september 2022 frá Geir Kr. Aðalsteinssyni formanni ÍBA þar sem komið er á framfæri áskorun til Akureyrarbæjar að endurskoða ákvörðunum um að fella niður hækkun annarra þátta en launaliðar rekstrarsamninga við íþróttafélögin fyrir árin 2021 og 2022.

Áheyrnafulltrúar: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar formanni ÍBA fyrir erindið og tekur vel í áskorun íþróttafélaganna.

3.Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023

Málsnúmer 2022080363Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun fræðslusviðs 2023-2026.

Áheyrnafulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

4.Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2026

Málsnúmer 2022060686Vakta málsnúmer

Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu og Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri gerðu grein fyrir drögum af fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023 - 2026.

Áheyrnafulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

5.Gjaldskrá fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023

Málsnúmer 2022090561Vakta málsnúmer

Tillögur að gjaldskrám fræðslusviðs fyrir árið 2023 lagðar fram til kynningar.

Áheyrnafulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.


Ásrún Ýr Gestsdóttir V-lista óskar að bóka:

Á tímum þar sem verðhækkanir í samfélaginu eru farnar að taka verulega í á heimilum ætti sveitarfélagið Akureyrarbær að standa með íbúum sínum. Þær gjaldskrárhækkanir sem fyrirhugaðar eru munu bitna einna helst á ungu fjölskyldufólki. Það að halda aftur af hækkaðri gjaldskrá leikskóla er einmitt skrefið sem bæjarfélagið ætti að taka í öllum gjaldskrám sem falla undir fræðslu- og lýðheilsusvið. Hækkun mataráskriftar og frístundar mun auka hættuna á því að fleiri börn í sveitarfélaginu fari svöng í gegnum daginn og foreldrar neiti sér um þjónustu frístundar. Við í Vinstrihreyfingunni grænt framboð munum engan veginn geta staðið með þessum tillögum.


Ísak Már Jóhannesson S-lista óskar að bóka:

Það er ótrúlegt miðað við umræður í aðdraganda nýafstaðinna kosninga að fulltrúar þeirra flokka sem lögðu fram kosningaloforð um gjaldfrjálsa leikskóla, að lækka leikskólagjöld í skrefum og að nauðsynlegt sé að leik- og grunnskólabörnum efnaminni foreldra séu tryggðar fríar skólamáltíðir skuli í fyrstu fjárhagsáætlun sinni leggja fram tillögu að gjaldskrá sem miðar almennt að 10% gjaldskrárhækkunum.

Leikskólagjöld á Akureyri eru með þeim hæstu á landinu og þó svo að lagt sé til að grunngjaldið standi í stað þá mun fæðiskostnaðurinn hækka um 10%, þannig að reikningur foreldra og forráðamanna vegna leikskólabarna hækkar.

Þá hækkar einnig verð í frístund og fæði í grunnskólum um 10% sem kemur harðast niður á efnaminni fjölskyldum.

Undirritaður telur nauðsynlegt að koma til móts við þarfir efnaminni einstaklinga og barnafjölskyldna við ákvarðanir meirihlutans um gjaldskrár.

6.Breyting á launaáætlun leikskóla september - desember 2022

Málsnúmer 2022090752Vakta málsnúmer

Fyrir liggur breyting á launaáætlun leikskóla haustið 2022.

Áheyrnafulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjórnenda, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Geir Kr. Aðalsteinsson fulltrúi ÍBA, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar erindinu til síðari umræðu í ráðinu.

Fundi slitið - kl. 14:00.