Fræðslu- og lýðheilsuráð

15. fundur 05. september 2022 kl. 13:00 - 15:15 Hlíðarskóli
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Tinna Guðmundsdóttir
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara
  • Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi skólastjóra
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson settur sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá

1.Heimsókn í Hlíðarskóla

Málsnúmer 2022081470Vakta málsnúmer

Valdimar Heiðar Valsson skólastjóri Hlíðarskóla tók á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sýndi skólahúsnæðið og sagði frá starfsemi skólans.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Valdimar Heiðari kærlega fyrir kynninguna.

2.Kynning á menntastefnu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2020080319Vakta málsnúmer

Kristrún Lind Birgisdóttir kynnti menntastefnu Akureyrarbæjar og næstu skref innleiðingarferlisins.

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla sat fundinn undir þessum lið.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Kristrúni fyrir kynninguna.

Menntastefnan er aðgengileg á heimasíðunni https://menntastefna.akureyri.is/ og hvetur ráðið íbúa að kynna sér stefnuna.

3.Leikskólar - innra mats skýrslur

Málsnúmer 2021081348Vakta málsnúmer

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kynnti innra mats skýrslur og starfsáætlanir leikskólanna.
Fræðslu- og lýðheilsuráð staðfestir fyrirliggjandi innra mats skýrslur og starfsáætlanir.

4.Þróunarleiðtogar skv. mannréttindastefnu Akureyrarbæjar 2022-2025

Málsnúmer 2022060687Vakta málsnúmer

Lögð fram mannréttindarstefna Akureyrarbæjar 2022 til 2023 þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að ráð bæjarins skipi þróunarleiðtoga sem verða málsvarar kynjasamþættingar og mannréttinda og hafi innsýn og þekkingu á mannréttindum.
Fræðslu- og lýðheilsuráð skipar Heimi Örn Árnason þróunarleiðtoga ráðsins samkvæmt mannréttindarstefnu Akureyrarbæjar.

5.Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2022

Málsnúmer 2022030187Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslu- og lýðheilsusviðs á tímabilinu janúar til júlí 2022.

6.Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2026

Málsnúmer 2022060686Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála og Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fóru yfir stöðu fjárhagsáætlunar fyrir sviðið.

Fundi slitið - kl. 15:15.