Fræðslu- og lýðheilsuráð

3. fundur 07. febrúar 2022 kl. 13:30 - 16:15 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Eva Hrund Einarsdóttir formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Viðar Valdimarsson
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Snjólaug Jónína Brjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Therése Möller fulltrúi leikskólakennara
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson fulltrúi skólastjóra
  • Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá

1.Menntastefna Akureyrarbæjar - framkvæmd

Málsnúmer 2020080319Vakta málsnúmer

Kristrún Lind Birgisdóttir framkvæmdastjóri Ásgarðs og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi Ásgarðs komu á fundinn og gerðu grein fyrir stöðu innleiðingar á menntastefnu Akureyrarbæjar.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fyrir greinargóðar upplýsingar um innleiðingu menntastefnu Akureyrarbæjar.

2.Rekstur fræðslusviðs 2021

Málsnúmer 2021030553Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs gerði grein fyrir stöðu rekstrar fræðslusviðs árið 2021.

3.Frístundaráð - rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2021050001Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs gerði grein fyrir stöðu rekstrar frístundaráðs 2021.

4.Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2021

Málsnúmer 2022010732Vakta málsnúmer

Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2021 lagðar fram til kynningar.

5.Skóladagatal leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2022-2023

Málsnúmer 2022011635Vakta málsnúmer

Tillaga um sameiginlega frídaga í grunnskólum Akureyrarbæjar skólaárið 2022-2023 lögð fram til staðfestingar.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir samhljóða að skólasetning í grunnskólum Akureyrarbæjar skólaárið 2022-2023 verði 22. ágúst, haustfrí 21. og 24. október og vetrarfrí 23. og 24. febrúar 2023.

6.Skólavogin - niðurstöður

Málsnúmer 2021050467Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs gerði grein fyrir niðurstöðum úr Skólavoginni varðandi rekstur leikskóla.

7.Staða innritunar í leikskóla og hjá dagforeldrum

Málsnúmer 2021023252Vakta málsnúmer

Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi gerði grein fyrir stöðu innrituna í leikskólana.
Fræðslu- og lýðheilsuráð telur forgangsmál að leita leiða til þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Ráðið felur Karli Frímannssyni sviðsstjóra, Evu Hrund Einarsdóttur og Gunnari Má Gunnarssyni að gera tillögur að úrbótum og greina þann kostnað sem felst í þeim fyrir fund ráðsins þann 7. mars.

8.Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga

Málsnúmer 2018110171Vakta málsnúmer

Skipa þarf þróunarleiðtoga fræðslu- og lýðheilsuráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir samhljóða að skipa Hildu Jönu Gísladóttir þróunarleiðtoga fræðslu- og lýðheilsuráðs.

9.Hollvinafélag Húna II - samningur 2022

Málsnúmer 2022011101Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur við Hollvinafélag Húna II.
Fræðslu- og frístundaráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við stjórnarmenn Hollvinafélags Húna II.

Fundi slitið - kl. 16:15.