Félagsmálaráð

1186. fundur 28. maí 2014 kl. 14:00 - 16:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Þráinn Brjánsson fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir

Málsnúmer 2014010041Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Forgangur í leiguhúsnæði 2014 - áfrýjun

Málsnúmer 2013110080Vakta málsnúmer

Dan J. Brynjarsson fjármálastjóri kynnti áfrýjun vegna forgangs í leiguhúsnæði bæjarins.

Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri lagði fram og kynnti ársskýrslu ÖA og uppfært skorkort ÖA fyrir árið 2013.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna. Ánægjulegt er að sjá hversu vel hefur tekist að auka hlutfall karla og fagmenntaðra starfsmanna hjá ÖA.

4.Búsetudeild ársskýrsla 2013

Málsnúmer 2014050121Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla búsetudeildar fyrir árið 2013.

5.Lautin - athvarf fyrir fólk með geðraskanir

Málsnúmer 2012010115Vakta málsnúmer

Samningur fyrir árið 2014 rennur út 31. ágúst 2014 og taka þarf ákvörðun um framhald málsins.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fór yfir stöðu mála og kynnti fund með fulltrúum velferðaráðuneytis.
Unnið er að framtíðarfjármögnun Lautarinnar. Samkvæmt framlögðum upplýsingum er reksturinn tryggður til 1. október 2014.

Framkvæmdastjóra búsetudeildar er falið að vinna áfram að samningaviðræðum við velferðarráðuneytið.

6.Grófin - geðverndarmiðstöð - ósk um fjárhagsstuðning

Málsnúmer 2014030277Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá Geðverndarfélagi Akureyrar, en málið var á dagskrá ráðsins 23. apríl sl.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti fund með fulltrúum velferðarráðuneytis. Málið er ennþá í vinnslu.

7.HAK - ársskýrsla 2013

Málsnúmer 2014050176Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla HAK 2013.

8.Heilsugæslustöðin á Akureyri - samningar við ríkið

Málsnúmer 2014020032Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri mætti á fundinn til að upplýsa um stöðu mála.

Félagsmálaráð Akureyrar furðar sig á þeirri stöðu sem uppi er varðandi starfsemi Heilsugæslustöðvarinnar í bænum. Fjárframlög ríkisins eru ekki í samræmi við framlög til annarra heilsugæslustöðva. Skortur á starfsfólki er viðvarandi og laun lægri en á sambærilegum stofnunum sem reknar eru af ríkinu.

Þetta ástand er með öllu óásættanlegt.

Félagsmálaráð krefst þess að heilbrigðisráðherra taki á málinu af þeirri festu sem honum ber. Viðurkenna þarf vandann og tryggja Heilsugæslunni á Akureyri nauðsynleg fjárframlög.

Fundi slitið - kl. 16:40.