Félagsmálaráð

1181. fundur 12. mars 2014 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þráinn Brjánsson fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir

Málsnúmer 2014010041Vakta málsnúmer

Selma Heimisdóttir og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafar kynntu áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2014

Málsnúmer 2014030045Vakta málsnúmer

Lagt fyrir til kynningar málefni einstaklings sem notið hefur þjónustu fjölskyldu- og húsnæðisdeildar.
Bókanir vegna einstaklingsmála eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Fjárhagsaðstoð 2014

Málsnúmer 2014010040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu tvo mánuði ársins 2014.

4.Bæjarstjórn Akureyrar og borgarstjórn Reykjavíkur - samstarfsvettvangur

Málsnúmer 2013020193Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga að samstarfi bæjarstjórnar Akureyrar og borgarstjórnar Reykjavíkur sem samþykkt var á sameiginlegum fundi 7. febrúar 2014. Lögð fram greinargerð með tillögunni.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

5.Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2014

Málsnúmer 2014010016Vakta málsnúmer

Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar kynnti stöðu mála varðandi vanda barna með fötlun/geðsjúkdóm og erfiða hegðun og Elín Sigurbjörg Jónsdóttir og Elva Haraldsdóttir sérkennsluráðgjafar kynntu námskeið sem haldin hafa verið um einhverfu.
Félagsmálaráð þakkar kynningarnar.

6.Framtíðarþing um farsæla öldrun - samstarf?

Málsnúmer 2014030008Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 18. febrúar 2014 frá Öldrunarráði Íslands þar sem leitað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ/félagsmálaráð um að efna til framtíðarþings um farsæla öldrun.

Félagsmálaráð tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra ÖA að vinna áfram að málinu.

7.Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna

Málsnúmer 2013120021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Sjúkrahúsinu á Akureyri dags. 28. febrúar 2014 þar sem óskað er endurskoðunar á samningi um þjónustu sérfræðilækna og vaktlækna við ÖA. Framkvæmdastjóri ÖA reifaði stöðu viðræðna við SAk um endurskoðun samningsins.

Í lok fundar var nefndarmönnum boðið í heimsókn að Þórunnarstræti 99 með leiðsögn Soffíu Lárusdóttur framkvæmdastjóra búsetudeildar.

Fundi slitið - kl. 16:00.