Félagsmálaráð

1170. fundur 11. september 2013 kl. 15:15 - 18:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson varaformaður
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Alfreðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir

Málsnúmer 2013010061Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2013

Málsnúmer 2013090073Vakta málsnúmer

Lagt fyrir til kynningar málefni einstaklings sem þarfnast viðamikillar þjónustu frá búsetu- og fjölskyldudeild.

Bókanir vegna einstaklingsmála eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnafulltrúi B-lista fór af fundi kl. 16:00.

3.Vinnuhópur um áfangaheimili

Málsnúmer 2013070018Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla vinnuhóps um áfangaheimli dags. 6. september 2013. Fulltrúar vinnuhópsins mættu á fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna en getur ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en ítarlegri gögn liggja fyrir.

4.Rekstrarfyrirkomulag hárgreiðslu- og fótaðgerðastofa hjá ÖA

Málsnúmer 2013090049Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um rekstrarfyrirkomulag þjónustunnar og forsendur mögulegs útboðs á þjónustu hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa hjá ÖA og víðar í þjónustu við aldraða hjá Akureyrarbæ.

Félagsmálaráð samþykkir að unnið verði að gerð útboðslýsingar og útboðs á þjónustunni. Framkvæmdastjóra ÖA og forstöðumanni í Þjónustumiðstöðinni Víðilundi er falið að vinna áfram að málinu.

5.Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2013

Málsnúmer 2013010124Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit yfir fyrstu 8 mánuði ársins 2013.

Félagsmálaráð þakkar fyrir upplýsingarnar.

6.Fjárhagsáætlun 2014 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2013090052Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjórar ÖA, HAK, búsetu- og fjölskyldudeild kynntu stöðu mála við gerð fjárhagsáætlunar 2014.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 18:15.