Félagsmálaráð

1165. fundur 29. maí 2013 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Sif Sigurðardóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Alfreðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir

Málsnúmer 2013010061Vakta málsnúmer

Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Heilsugæslustöðin á Akureyri - jafnlaunaátak 2013

Málsnúmer 2013050194Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvarinnar kynnti stöðu jafnlaunaátaks gagnvart HAK.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

3.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð

Málsnúmer 2012110070Vakta málsnúmer

Tekin var fyrir umræða um leiguverð í leiguíbúðum Akureyrarbæjar en málið var á dagskrá 14. febrúar sl. Lagt var fram minnisblað Jóns Heiðars Daðasonar dags. 1. mars 2013 um tölfræðilega greiningu á leiguhækkun og sérstakar húsaleigubætur.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs að húsaleiga í leiguíbúðum Akureyrarbæjar verði hækkuð frá 1. september 2013 umfram vísitöluhækkun.

Prósentuhækkun á íbúðir er sem hér segir:

2ja herbergja 17,5%, 3ja herbergja 15,3%, 4ra herbergja 13,5% og 5 herbergja 11,5%.

Jafnframt verði frá sama tíma teknar upp sérstakar húsaleigubætur.

Fundi slitið - kl. 16:00.