Félagsmálaráð

1160. fundur 27. febrúar 2013 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Alfreðsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Margrét Alfreðsdóttir
Dagskrá
Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi S-lista mætti á fundinn kl. 14:11.

1.Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir

Málsnúmer 2013010061Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2012

Málsnúmer 2012030172Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fjölluðu um rekstrarniðurstöður ársins 2012 hjá deildum og málaflokkum félagsmálaráðs.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju með þann árangur sem hefur náðst í rekstri.

Félagsmálaráð felur framkvæmdastjóra búsetudeildar að skipa starfshóp skipaðan fulltrúum frá búsetudeild, fjölskyldudeild og skóladeild til að fara yfir reglur um inntöku og þjónustu skólavistunar í Árholti svo og að skilgreina stjórnsýslulega stöðu hennar.

3.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild fór yfir minnisblað dags. 27. febrúar 2013 sem lagt var fram um stöðu verkefnisins NPA.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og mun fylgjast með framvindu mála.

Félagsmálaráð felur framkvæmdastjórum deilda að gera áætlun um fjárþörf verkefnisins.

4.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2012121054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir trúnaðarmál.

Niðurstaða bókuð í trúnaðarbók.

5.Heilsugæslustöðin á Akureyri - fjölskylduráðgjöf

Málsnúmer 2011040080Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti áskorun sem fjölskylduráðgjöf á HAK sendi velferðarráðherra þess efnis að efla starfsemina þannig að unnt verði að mæta þörfum íbúa fyrir ráðgjöf og meðferð á heilsugæslunni á sviði fjölskyldu- og geðverndar.

Félagsmálaráð tekur undir áskorunina.

6.Skýrsla og tillögur vinnuhóps 5 um sameiningu heilbrigðisstofnana og ýmissar sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu

Málsnúmer 2013020049Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti skýrslu og tillögur vinnuhóps velferðarráðuneytis varðandi sameiningarmál heilbrigðisstofnana. Þar kom m.a. fram álit hópsins um að sameina skuli heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi.
Lagt fram til kynningar.

 

7.Menntasmiðja kvenna 2008-2012 - samningur við Starfsendurhæfingu Norðurlands

Málsnúmer 2008080086Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá samfélags- og mannréttindaráði um tilnefningu í vinnuhóp vegna kvennasmiðju.

Félagsmálaráð tilnefnir Val Sæmundsson sem fulltrúa ráðsins.

Fundi slitið - kl. 17:00.