Félagsmálaráð

1159. fundur 13. febrúar 2013 kl. 14:00 - 17:00 Heilsugæslustöðin - fundarsalur 4. hæð
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson varaformaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Sif Sigurðardóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Alfreðsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Guðrún Sigurðardóttir
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Indu Bjarkar Gunnarsdóttur.

1.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð

Málsnúmer 2012110070Vakta málsnúmer

Tekin upp að nýju umræða um leiguverð í leiguíbúðum Akureyrarbæjar. Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Einnig mættu á fundinn undir þessum lið Dan J. Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfultrúi. Lagt var fram minnisblað Jóns Heiðars Daðasonar dags. 4. febrúar 2013 um tölfræðilega greiningu á leiguhækkun og sérstakar húsaleigubætur.

Félagsmálaráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

2.Heilbrigðisáætlun - óskað umsagnar

Málsnúmer 2012090143Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti ný drög að Velferðarstefnu (áður heilbrigðisstefnu) Velferðarráðuneytis. Sent til umsagnar í annað sinn. Þingskjalið er hægt að nálgast á vef Alþingis á slóðinni: http://www.althingi.is/altext/141/s/0639.html
Lögð voru fram drög að umsögn um velferðarstefnuna.

Félagsmálaráð samþykkir umsögnina.

3.Dvalarrými og móttaka - breyting á dvalarrýmum í dagdeildarrými, aukin verkefni og skipan mótttöku íbúa og gesta

Málsnúmer 2013020112Vakta málsnúmer

Þann 1. júní 2012 gekk í gildi ný reglugerð velferðaráðherra um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma sem kveður á um störf færni- og heilsumatsnefnda og breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir búsetu í dvalar- og hjúkrunarrými eða tímabundnum innlögnum. Í kjölfarið urðu töluverðar breytingar á verklagi sem fólust í því að í stað þess að deildarstjóri heimahjúkrunar hjá HAK sæi um skipulagningu og umsjón rýma var það verkefni alfarið flutt frá 1. desember 2012 til ÖA. Verkefnið var tímabundið vistað hjá einum deildarstjóra ÖA.
Nú liggur fyrir að finna þarf verkefni þessu varanlegri farveg. Áætlun sem unnin var af hjúkrunarforstjóra og deildarstjóra gerir ráð fyrir að ætla megi um 40-50% stöðuhlutfall í þessi verkefni og er kostnaður við það áætlaður um 3 milljónir króna á ári.
Með vísan til þessa er lagt til að breyta/fjölga dagdeildarrýmum um tvö.

Félagsmálaráð samþykkir fyrirhugaða umsókn um tilfærslu milli dvalar- og dagdeildarrýma.

4.Þjónustuhópur aldraðra 2010-2014

Málsnúmer 2010110057Vakta málsnúmer

Tilnefning fulltrúa Akureyrarbæjar í þjónustuhóp aldraðra skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra.

Félagsmálaráð samþykkir að skipa Önnu Marit Níelsdóttur félagsráðgjafa sem fulltrúa Akureyrarbæjar.

5.Heimahjúkrun - reglur um forgang

Málsnúmer 2013020050Vakta málsnúmer

Inga Dagný Eydal kynnti drög að reglum um forgangsröðun um heimahjúkrun.

Félagsmálaráð samþykkir reglurnar.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista vék af fundi kl. 15:44.

6.Heilsugæslustöðin á Akureyri - ráðning yfirlæknis 2013

Málsnúmer 2013020052Vakta málsnúmer

Þórir V. Þórisson yfirlæknir HAK kynnti ráðningu nýs yfirlæknis við heilsugæsluna.

Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með ráðningu Jóns Torfa Halldórssonar í stöðu yfirlæknis HAK.

7.Skýrsla og tillögur vinnuhóps 5 um sameiningu heilbrigðisstofnana og ýmissar sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu

Málsnúmer 2013020049Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti skýrslu vinnuhóps Velferðarráðuneytis um sameiningu heilbrigðisstofnana. Þar er lagt til að heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi verði allar ein stofnun.

Málinu frestað.

Fundi slitið - kl. 17:00.