Félagsmálaráð

1158. fundur 23. janúar 2013 kl. 14:00 - 16:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Dagskrá

1.Afskriftir lána 2012

Málsnúmer 2012120034Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram áætlun um afskriftir lána 2012.

Félagsmálaráð samþykkir áætlunina og vísar málinu til bæjarráðs.

Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi S-lista mætti á fundinn kl: 14:08 og Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista mætti kl: 14:11.

2.Fjárhagsaðstoð 2013 - breyting á framfærslugrunni

Málsnúmer 2013010176Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.
Lagt var fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 18. janúar 2013 um breytingu á framfærslugrunni í fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar um 4.2% í samræmi við hækkun neysluvísitölu frá desember 2011 til desember 2012.

Málinu vísað til bæjarráðs.

3.Öldrunarrými - staða biðlista

Málsnúmer 2011010134Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild lagði fram til kynningar biðlista eftir öldrunarrýmum.
Biðlisti eftir hjúkrunarrými hefur styst miðað við sama tíma í fyrra en biðlisti eftir dvalarými lengst.

4.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Halldórs Sigurðar Guðmundssonar framkvæmdastjóra ÖA dags. 21. janúar 2013 varðandi innleiðingu EDEN hugmyndafræðinnar og frekari stefnumótun varðandi framkvæmd stefnunnar og annarrar starfsemi ÖA.

5.ÖA - velferð og tækni, velferðartækni

Málsnúmer 2013010215Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Halldórs Sigurðar Guðmundssonar framkvæmdastjóra ÖA dags. 21. janúar 2013 um tækni og velferð í öldrunarþjónustu.

Félagsmálaráð samþykkir stofnun starfshóps undir stjórn Halldórs Sigurðar Guðmundssonar með aðilum frá ÖA, HAK og búsetudeild.

6.Starfshópur félagsmálaráðs - tillögur um aðgerðir til að efla áhuga á störfum á ÖA

Málsnúmer 2013010189Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps félagsmálaráðs dags. janúar 2013 um tillögur um aðgerðir til að gera störf á Öldrunarheimilum Akureyrar sýnileg og áhugaverð.
Friðný B. Sigurðardóttir þjónustustjóri á ÖA og Dagur Fannar Dagsson kynntu efni skýrslunnar.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og starfshópnum fyrir vel unnin störf.

7.Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar

Málsnúmer 2012090258Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá samfélags- og mannréttindaráði þar sem óskað er eftir tilnefningu frá félagsmálaráði í valnefnd vegna viðurkenninga fyrir framúrskarandi æskulýðs- og tómstundastarf.
Félagsmálaráð tilnefnir Valdísi Önnu Jónsdóttur sem fulltrúa félagsmálaráðs í valnefndina.

Fundi slitið - kl. 16:15.