Félagsmálaráð

1156. fundur 12. desember 2012 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 4. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2012 - áfrýjanir

Málsnúmer 2012010019Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Málið var áður á dagskrá 28. nóvember 2012.

Félagsmálaráð samþykkir reglur um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til bæjarstjórnar.

3.Skammtímavistun fyrir fatlað fólk - reglur

Málsnúmer 2011010045Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild kynnti reglur um afgreiðslu umsókna um skammtímavistun fyrir fatlað fólk.

Félagsmálaráð samþykkir reglur um afgreiðslu umsókna um skammtímavistun fyrir fatlað fólk og vísar þeim til bæjarstjórnar.

4.Dagvist aldraðra

Málsnúmer 2012121055Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild kynnti reglur um dagvist aldraðra hjá Akureyrarbæ.

Félagsmálaráð samþykkir reglur um dagvist aldraðra og vísar þeim til bæjarstjórnar.

5.Búseta með þjónustu fyrir fatlaða - starfsemi 2012

Málsnúmer 2012121054Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildardeildar kynnti fyrirhugaðar breytingar í búsetu.
Lagt fram minnisblað Soffíu Lárusdóttur dags. 12. desember 2012 merkt trúnaðarmál.

6.Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2012

Málsnúmer 2012050021Vakta málsnúmer

Áskell Örn Kárason forstöðumaður fór yfir stöðuna í barnavernd og kynnti tölulegar upplýsingar úr málaflokknum.
Ólöf Elfa Leifsdóttir forstöðumaður gerði grein fyrir starfsemi Plastiðjunnar Bjargs/Iðjulundar.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

7.Vinna og virkni 2013

Málsnúmer 2012121032Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti verkefnið Vinna og virkni 2013.
Lagt fram bréf frá Karli Björnssyni framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 7. desember 2012 ásamt fylgigögnum.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti að Akureyrarbær taki þátt í verkefninu Vinna og virkni 2013. Málinu vísað til bæjarráðs.

8.SÁÁ - styrkbeiðni vegna reksturs göngudeildar 2012

Málsnúmer 2011100092Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri lagði fram drög að samstarfssamningi Akureyrarbæjar og SÁÁ fyrir árið 2012. Málið var áður á dagskrá ráðsins 24. október 2012.

Félagsmálaráð samþykkir samstarfssaming Akureyrarbæjar og SÁÁ fyrir árið 2012.

9.Félagsmálaráð - starfsemi 2010-2014

Málsnúmer 2010060081Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundaáætlun félagsmálaráðs fyrir mánuðina janúar til júní 2013.

Fundi slitið - kl. 16:30.