Félagsmálaráð

1147. fundur 15. ágúst 2012 kl. 14:00 - 15:51 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson varaformaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
Starfsmenn
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsaðstoð 2012

Málsnúmer 2012010021Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir veitta aðstoð eftir fyrstu sjö mánuði ársins.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

2.Vinabæjamót félagsmálafólks - 2012

Málsnúmer 2012080046Vakta málsnúmer

Farið yfir dagskrá vinabæjamóts sem til stendur að halda á Akureyri 29.- 31. ágúst nk. og önnur atriði sem tengjast afmælisárinu.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og felur framkvæmdastjórum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 sem voru samþykkt á Alþingi 11. júní 2012 (ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk).

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju sinni með breytingarnar á lögunum.

4.Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014, 440. mál

Málsnúmer 2012020024Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttur framkvæmdastjóri búsetudeildar lögðu fram til kynningar tillögu velferðarráðherra um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014 sem Alþingi samþykkti þann 11. júní sl.

5.Umsögn félagsmálaráðs um ráðningu í stöðu forstöðumanns búsetuþjónustu til eins árs.

Málsnúmer 2012080032Vakta málsnúmer

Umsögn félagsmálaráðs um ráðningu í stöðu forstöðumanns búsetuþjónustu til eins árs. Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram gögn í málinu á fundinum.

Félagsmálaráð tekur undir mat framkvæmdastjóra og veitir Birgit Eivor Schov jákvæða umsögn.

Fundi slitið - kl. 15:51.