Félagsmálaráð

1136. fundur 14. desember 2011 kl. 14:00 - 17:20 Heilsugæslustöðin - fundarsalur 4. hæð
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Margrét Guðjónsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Heimaþjónusta - áfrýjanir 2011

Málsnúmer 2011010135Vakta málsnúmer

Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður á búsetudeild kynnti áfrýjun í heimaþjónustu.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2011

Málsnúmer 2011070007Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram drög að samstarfssamningi við Fjölsmiðjuna á Akureyri fyrir árin 2012-2014.

Félagsmálaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem fram komu á fundinum og vísar honum til bæjarráðs.

Jóhann Ásmundsson V-lista mætti á fundinn kl. 14:20.

3.Afskriftir lána 2011

Málsnúmer 2011120028Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram áætlun um afskriftir lána 2011.

Félagsmálaráð samþykkir áætlunina og vísar málinu til bæjarráðs.

4.Starfsáætlun félagsmálaráðs 2010-2014

Málsnúmer 2011010043Vakta málsnúmer

Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lögðu fram starfsáætlun og aðgerðalista félagsmálaráðs 2010-2014.

5.Búseta með þjónustu fyrir fatlaða - starfsemi 2011

Málsnúmer 2011040108Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti ýmis mál sem eru til vinnslu varðandi búsetumál fatlaðra.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

6.Búsetudeild - gjaldskrár 2012

Málsnúmer 2011120048Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fór yfir gjaldskrár búsetudeildar fyrir árið 2012.

7.Félagsmálaráð - starfsemi 2010-2014

Málsnúmer 2010060081Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK lagði fram fundaráætlun félagsmálaráðs fyrir vorönn 2012.

8.Niðurskurður í heimahjúkrun

Málsnúmer 2011120039Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK lagði fram aðsent bréf frá sjúkraliðum í heimahjúkrun varðandi niðurskurð 2012. Þar viðra þeir áhyggjur sínar af samdrætti í heimahjúkrun og auknu álagi.

Fundi slitið - kl. 17:20.