Félagsmálaráð

1113. fundur 24. nóvember 2010 kl. 14:00 - 16:35 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Anna Guðný Guðmundsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Jóhann Ásmundsson
Starfsmenn
  • Brit Bieltvedt
  • Guðrún Sigurðardóttir
  • Margrét Guðjónsdóttir
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2010

Málsnúmer 2010040019Vakta málsnúmer

Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynntu rekstraryfirlit deilda fyrstu 10 mánuði ársins. Rekstur er að langmestu leyti innan áætlunar.

Félagsmálaráð lýsir ánægju með hversu vel gengur að halda rekstri innan áætlunar og þakkar starfsfólki og stjórnendum fyrir þeirra framlag.

2.Fjárhagserindi 2010 - áfrýjanir

Málsnúmer 2010030115Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun vegna afgreiðslu fjölskyldudeildar á beiðni um fjárhagsaðstoð.
Áfrýjunin og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Fjárhagsaðstoð 2010

Málsnúmer 2010010049Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri í félagsþjónustu og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynntu yfirlit fjárhagsaðstoðar mánuðina janúar til október 2010.

4.Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2010

Málsnúmer 2010010050Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Áskell Örn Kárason forstöðumaður í barnavernd, Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri í félagsþjónustu og Guðrún Kristófersdóttir sálfræðingur í skólaþjónustu kynntu stöðuna í þjónustu deildarinnar.

5.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynntu drög að samningi um myndun þjónustusvæðis í Eyjafirði vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.

Félagsmálaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.

6.Laut - athvarf geðfatlaðra 2010

Málsnúmer 2010050097Vakta málsnúmer

Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar, Akureyrardeildar Rauða krossins og Geðverndarfélags Akureyrar vegna Lautar - athvarfs fyrir geðfatlaða rennur út í árslok. Umræða um hvernig á að haga samstarfi á komandi árum og hvort og þá hvernig samning á að gera nú.

Félagsmálaráð leggur til að núverandi samningur verði framlengdur um eitt ár og vísar málinu til bæjarráðs. Jafnframt er lögð áhersla á að strax á nýju ári hefjist viðræður um hvernig framhaldinu verður háttað.

Fundi slitið - kl. 16:35.