Félagsmálaráð

1115. fundur 22. desember 2010 kl. 14:00 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • María Hólmfríður Marinósdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Heimaþjónusta - áfrýjanir 2010

Málsnúmer 2010100138Vakta málsnúmer

Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður heimaþjónustu kynnti áfrýjun á afgreiðslu búsetudeildar á umsókn um félagslega heimaþjónustu. Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjárhagserindi 2010 - áfrýjanir

Málsnúmer 2010030115Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafar á fjölskyldudeild kynntu tvær áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanirnar og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Félagsþjónustan - úrræði

Málsnúmer 2010120094Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar greindi frá hugmyndum um ný úrræði í félagsþjónustu.
Ester Lára Magnúsdóttir og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafar á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.
Til kynningar.

4.Vinabæjamót félagsmálafólks - 2011

Málsnúmer 2010120103Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar boð frá Randers á vinabæjafund félagsmálafólks 5.- 7. júní 2011.

5.Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012

Málsnúmer 2009090008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá undirbúningsnefnd vegna 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar árið 2012.

Fundi slitið - kl. 15:45.