Félagsmálaráð

1127. fundur 10. ágúst 2011 kl. 14:00 - 16:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Félagsmálaráð - starfsemi 2010-2014

Málsnúmer 2010060081Vakta málsnúmer

Fundaáætlun félagsmálaráðs ágúst-desember 2011 lögð fram.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

Samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Ferli og tímaáætlun fjárhagsáætlunargerðar bæjarins fyrir árið 2012 lagt fram til kynningar.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

3.Fjárhagsaðstoð 2011

Málsnúmer 2011010143Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð eftir fyrstu sjö mánuði ársins. Útgjöldin voru kr. 63.407.983 sem er 31% hækkun miðað við á sama tíma árið 2010.

Félagsmálaráð lýsir áhyggjum sínum af þróun mála. Ljóst er að fjárveiting ársins mun ekki nægja til að mæta þörf fyrir aðstoð.

4.Fjölfötluð ungmenni - athugasemdir varðandi þjónustu

Málsnúmer 2011070041Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá foreldrum fatlaðra ungmenna varðandi þá dagþjónustu sem þau fá.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Þóra Elín Arnardóttir ráðgjafi á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið. Þær lögðu fram minnisblað dags. 8. ágúst 2011 og fóru yfir málið.

Ákveðið að leita lausna í samræmi við umræður og hugmyndir sem fram komu á fundinum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og svara erindi foreldranna.

5.Þjónusturáð sameiginlegs þjónustusvæðis í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk 2011-2014

Málsnúmer 2011020021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar þjónusturáðs sameiginlegs þjónustusvæðis í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

6.Félags- og tryggingamálaráðuneytið - þjónustusamningur 2010

Málsnúmer 2009110122Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Akureyrarbæjar um þjónustu við fatlaða á Eyjarfjarðarsvæðinu árið 2010.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

7.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011.

8.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011.

Félagsmálaráð fagnar þessum nýju lögum sem marka tímamót í réttindabaráttu þeirra sem nota íslenskt táknmál.

9.Félagsleg liðveisla - reglur 2011

Málsnúmer 2011080014Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um félagslega liðveislu til samræmis við breytingar á lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 og lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Frestur umsækjenda til að áfrýja ákvörðun félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála lengist úr fjórum vikum í þrjá mánuði.

Félagsmálaráð samþykkir breytinguna og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.

10.Ferliþjónusta - reglur 2011

Málsnúmer 2011080015Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um ferliþjónustu til samræmis við breytingar á lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 og lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Frestur umsækjenda til að áfrýja ákvörðun félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála lengist úr fjórum vikum í þrjá mánuði.
Félagsmálaráð samþykkir breytinguna og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.

11.Laut - athvarf geðfatlaðra 2010

Málsnúmer 2010050097Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Lautarinnar vegna ársins 2010.

12.Framkvæmdastjóri búsetudeildar

Málsnúmer 2011050001Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð þakkar Kristínu Sóleyju Sigursveinsdóttur fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir vel unnin störf á búsetudeild og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Fundi slitið - kl. 16:45.