Félagsmálaráð

1116. fundur 12. janúar 2011 kl. 14:00 - 17:07 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
Starfsmenn
  • Brit Bieltvedt
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir
  • Margrét Guðjónsdóttir
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Starfsáætlun félagsmálaráðs 2010-2014

Málsnúmer 2011010043Vakta málsnúmer

Unnið að starfsáætlun félagsmálaráðs.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.

2.Öldrunarheimili Akureyrar - starfsemi 2011

Málsnúmer 2011010041Vakta málsnúmer

Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA fór yfir stöðu mála á öldrunarheimilunum.

3.Fjárhagsaðstoð 2011 - breyting á framfærslugrunni

Málsnúmer 2011010032Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra dags. 3. janúar 2011 þar sem þeim tilmælum er beint til sveitarstjórna að þær tryggi að einstaklingar hafi að lágmarki sambærilega fjárhæð og atvinnuleysisbætur til framfærslu á mánuði. Atvinnuleysisbætur eru nú kr. 149.523 á mánuði.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram og kynnti minnisblað dags. 12. janúar 2011 þar sem farið er yfir vinnulag og breytingar varðandi fjárhæðir í fjárhagsaðstoð bæjarins og sveitarfélaga almennt.
Einnig kynnt umræða sem nú á sér stað á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir að leggja til hækkun á framfærslugrunni fjárhagsaðstoðar í samræmi við breytingar á vísitölu síðustu tveggja ára, að frádreginni hækkun síðasta árs. Grunnupphæð hækkar þá úr kr. 125.540 í kr. 131.617 á mánuði eða um 4,8%. Beðið verði með frekari breytingar þar til séð verði hvernig málin þróast á landsvísu.

Málinu vísað til bæjarráðs.

4.Reglur félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 2010010047Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti drög dags. í janúar 2011 að breytingum á reglum félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til bæjarráðs.

5.Fjárhagsaðstoð 2011 - 24. grein reglna

Málsnúmer 2011010033Vakta málsnúmer

Rætt um fjárveitingu árins 2011 til námsstyrkja skv. 24. gr. reglna félagsmálaráðs Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir að veita allt að 5,6 milljónum króna, af fjárveitingu til fjárhagsaðstoðar, til námsstyrkja á árinu 2011.

6.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlaða dags. 22. desember 2010.
Einnig kynnt lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 með breytingum sem samþykktar voru í desember 2010.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.

7.Reglur um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2005110070Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

8.Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra

Málsnúmer 2010010042Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011, um breytingar á reglum um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

9.Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa

Málsnúmer 2010030022Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

10.Heimaþjónusta - reglur 2011

Málsnúmer 2011010049Vakta málsnúmer

Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um heimaþjónustu, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

11.Skammtímavistun fyrir fatlað fólk - reglur 2011

Málsnúmer 2011010045Vakta málsnúmer

Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um skammtímavistun, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

12.Þrastarlundur 3-5 - samningur

Málsnúmer 2010120124Vakta málsnúmer

Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti samning milli Akureyrarbæjar og félags- og tryggingamálaráðuneytis dags. 30. desember 2010 vegna Þrastarlundar 3-5.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:07.