Félagsmálaráð

1123. fundur 11. maí 2011 kl. 14:00 - 18:05 Fundarsalur á 4. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Margrét Guðjónsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða - starfsemi 2011

Málsnúmer 2011040109Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri og Ólafur Örn Torfason forstöðumaður í búsetuþjónustu geðfatlaðra sátu fundinn undir þessum lið og kynntu hugmyndir að lausn á bráðum búsetuvanda geðfatlaðra, samanber umræður á síðasta fundi ráðsins.

Félagsmálaráð felur starfsmönnum að vinna áfram í málinu.

2.Framkvæmdastjóri búsetudeildar - uppsögn

Málsnúmer 2011050001Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sat fundinn undir þessum lið og kynnti félagsmálaráði uppsögn sína sem framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar. Starfslok er áætluð 31. júlí 2011.
Félagsmálaráð þakkar Kristínu fyrir vel unnin störf. Jafnframt óskar ráðið eftir því að starfið verði auglýst sem fyrst.

3.Styrkir til breytinga á húsnæði vegna fötlunar

Málsnúmer 2011030148Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar lögðu fram umsögn bæjarlögmanns um drög að reglum um styrki til að breyta húsnæði vegna fötlunar barna. Einnig voru lögð fram ný drög að reglum.

Félagsmálaráð samþykkir drögin með breytingum sem fram komu á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.

4.Starfsemi Skógarlundar/Birkilundar - hæfingarstöðvar

Málsnúmer 2010030020Vakta málsnúmer

Margrét I. Ríkarðsdóttir forstöðumaður Hæfingarstöðvar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir starfi vinnuhóps um málefni Hæfingarstöðvarinnar.
Lagt var fram minnisblað dags. 9. maí 2011.

Félagsmálaráð þakkar fyrir góða kynningu.

5.Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2011

Málsnúmer 2011010145Vakta málsnúmer

Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið og kynnti stöðuna í barnavernd ásamt Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar.
Lögð voru fram þrjú skjöl:
1) Minnisblað Áskels Arnar Kárasonar.
2) Samningur á milli Akureyrarbæjar og Barnaverndarstofu um meðferð fyrir unglinga frá 2009.
3) Drög að nýjum samningi um sama efni.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju sinni með áætlanir um áframhaldandi samning milli Akureyrarbæjar og Barnaverndarstofu um meðferð fyrir unglinga.

6.Fjölskyldudeild - kynning á starfsemi 2011

Málsnúmer 2011010145Vakta málsnúmer

Líney Helgadóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild, Elva Haraldsdóttir sérkennsluráðgjafi á fjölskyldudeild og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið og kynntu stöðu mála í sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla, einkum þjónustu við leikskólana.
Lagt var fram minnisblað Elvu Haraldsdóttur dags. 9. maí 2011.

Félagsmálaráð þakkar góða kynningu og gott starf sem unnið er í sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla.

7.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2011010146Vakta málsnúmer

Esther Magnúsdóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Framhald umræðu í félagsmálaráði 9. mars sl. um félagslegt húsnæði.
Lagt var fram minnisblað um þörf fyrir sértæk úrræði í húsnæðismálum.

Félagsmálaráð felur starfsmönnum að vinna nánari áætlunargerð varðandi sértæk úrræði.

8.Kvennaráðgjöfin - styrkbeiðni 2010

Málsnúmer 2010110073Vakta málsnúmer

Erindi dags. 12. nóvember 2010 frá Sigríði Vilhjálmsdóttur f.h. Kvennaráðgjafarinnar þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 500.000 til að greiða rekstrarkostnað Kvennaráðgjafarinnar á næsta ári og til að greiða kostnað við áframhaldandi þróun á heimasíðu ráðgjafarinnar.

Félagsmálaráð sér sér ekki fært að verða við þessari beiðni.

9.Neytendasamtökin - styrkbeiðni fyrir árið 2011

Málsnúmer 2010100088Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. október 2010 frá Neytendasamtökunum varðandi styrkveitingu til samtakanna á árinu 2011.

Félagsmálaráð sér sér ekki fært að verða við þessari beiðni.

10.Samhygð - samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra - styrkbeiðni 2011

Málsnúmer 2011040001Vakta málsnúmer

Erindi dags. 29. mars 2011 frá Hugrúnu Stefánsdóttur f.h. Samtaka um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 100.000 til reksturs félagsins.

Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra um kr. 100.000.

11.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk

Málsnúmer 2011030119Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. mars 2011 þar sem Þórlaug R. Jónsdóttir rekstrarstjóri Kvennaathvarfsins óskar eftir styrk að upphæð kr. 400.000. Einnig kemur fram að Þórlaugu láðist að senda inn umsókn í febrúar sl. eins og venjan er og er þess farið á leit að litið verði framhjá því að þessu sinni.

Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Samtök um kvennaathvarf um kr. 200.000.

12.Sérfræðingarnir ses - styrkbeiðni

Málsnúmer 2011030092Vakta málsnúmer

Erindi dags. í mars 2011 frá Bjarna Torfa Álfþórssyni og Hirti Grétarssyni f.h. Sérfræðinganna ses þar sem fram kemur að það sé einlæg von félagsins að Akureyrarkaupstaður gerist stofnfjáraðili að Specialisterne á Íslandi með fjárframlagi sem nemur 50 krónum á hvern íbúa bæjarfélagsins.

Félagsmálaráð sér sér ekki fært að verða við þessari beiðni.

13.Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses - styrkbeiðni 2010

Málsnúmer 2010110070Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. nóvember 2010 frá Sjónarhóli - ráðgjafarmiðstöð ses þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk.

Félagsmálaráð samþykkti að styrkja Sjónarhól - ráðgjafarmiðstöð ses um kr. 300.000.

14.Stígamót - styrkbeiðni 2010

Málsnúmer 2010110044Vakta málsnúmer

Umsókn dags. 1. nóvember 2010 frá Þórunni Þórarinsdóttur f.h. Stígamóta varðandi rekstur samtakanna.

Félagsmálaráð sér sér ekki fært að verða við þessari beiðni.

15.Félagsmálaráð - skoðunarferð um stofnanir sem heyra undir ráðið

Málsnúmer 2009090034Vakta málsnúmer

Heimsókn í Hæfingarstöðina við Skógarlund/Birkilund.

Félagsmálaráð þakkar góða kynningu á mikilvægri starfsemi í heimsókn á Hæfingarstöðina.

Fundi slitið - kl. 18:05.