Félagsmálaráð

1183. fundur 09. apríl 2014 kl. 14:00 - 16:00 Hlíð - samkomusalur
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Karólína Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Þráinn Brjánsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Margrét Alfreðsdóttir
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir

Málsnúmer 2014010041Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista mætti á fundinn kl. 14:14.

2.Vinabæjamót félagsmálafólks 2014

Málsnúmer 2014040006Vakta málsnúmer

Kynnt fyrirhugað vinabæjarmót og ráðstefna sem halda á í Ålesund í Noregi 11.- 13. júní nk.

Félagsmálaráð samþykkir að senda nefndarmennina Dag Fannar Dagsson og Sif Sigurðardóttur ásamt Soffíu Lárusdóttur framkvæmdastjóra búsetudeildar.

3.Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar

Málsnúmer 2012090258Vakta málsnúmer

Samfélags og mannréttindaráð óskar eftir tilnefningu félagsmálaráðs í valnefnd á vegum ráðsins.

Félagsmálaráð samþykkir að tilnefna Val Sæmundsson í valnefnd á vegum ráðsins.  Framkvæmdastjóra búsetudeildar er falið að hafa samband við Félag eldri borgara. 

4.Heilsugæslustöðin á Akureyri - samningar við ríkið

Málsnúmer 2014020032Vakta málsnúmer

Heilsugæslustöðin á Akureyri, samningar við ríkið.

Félagsmálaráð telur að rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eigi heima í höndum Akureyrarbæjar eins og verið hefur undanfarin 17 ár. Félagsmálaráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna um nýjan samning við Velferðarráðuneytið sbr. framlögð gögn vegna málsins.  Sömuleiðis skorar félagsmálaráð á Alþingi að taka fjárveitingar til Heilsugæslustöðvarinnar til gagngerrar endurskoðunar hið fyrsta.

5.Úttekt á afkomu og fjárhagsstöðu hjúkrunar- og dvalarheimila á árinu 2013

Málsnúmer 2014040021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Félagsmálaráð felur framkvæmdastjóra ÖA og fjármálastjóra Akureyrarbæjar að taka saman þessar upplýsingar í samráði við bæjarstjóra.

6.Eden alternative / hugmyndafræði

Málsnúmer 2013120037Vakta málsnúmer

Stutt kynning á vinnu með Eden hugmyndafræðina, niðurstöður könnunar, námskeiðahald, ráðstefnur og fræðsluáform á næstu mánuðum.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista fór af fundi kl. 15:29.

7.ÖA - Saga - heilbrigðisskráningarkerfi

Málsnúmer 2014010068Vakta málsnúmer

Hjúkrunarforstjóri greindi frá innleiðingarferli kerfisins og þeim möguleikum sem opnast við notkun þess á ÖA.

Félagsmálaráð fagnar hversu vel hefur tekist við innleiðingu á rafrænni sjúkraskráningu á ÖA.

Sif Sigurðardóttir A-lista fór af fundi kl. 16:28.

8.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir helstu atriðum í kafla ÖA í ársskýrslu Akureyrarbæjar, framlengingu á samningum um lyfjaskömmtun og eftirlit, vinnu við samninga við HA og SAk og athugunum á kaupum á hugbúnaði til að halda utan um innkaup matvöru og hjúkrunarvöru.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 16:00.