Félagsmálaráð

1106. fundur 30. júní 2010 kl. 14:00 - 16:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Anna Guðný Guðmundsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Jóhannes Árnason
Starfsmenn
  • Brit Bieltvedt
  • Guðrún Sigurðardóttir
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2010

Málsnúmer 2010040019Vakta málsnúmer

Kynnt rekstrarstaða eftir fyrstu fimm mánuði ársins. Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Kristín S. Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Lára Ólafsdóttir skrifstofustjóri HAK fóru yfir helstu niðurstöður og frávik frá áætlun. Rekstur allra deilda er innan áætlunar.

Félagsmálaráð fagnar því að rekstur deilda er í heildina innan áætlunar en telur ástæðu til að fylgjast vel með gangi mála t.d. í fjárhagsaðstoð þar sem aukning er meiri en gert var ráð fyrir. Greinilegt er að aðhaldsaðgerðir eru að skila sér í rekstrinum en einnig er ljóst að ekki verður mikið lengra gengið í niðurskurði án þess að skerða verulega þjónustu.

Brit J. Bieltvedt og Lára Ólafsdóttir fóru af fundi eftir afgreiðslu 1. liðar.

2.Fjárhagserindi 2010 - áfrýjanir

Málsnúmer 2010030115Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti áfrýjanir vegna afgreiðslu fjölskyldudeildar á umsóknum um fjárhagsaðstoð. Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni 2010

Málsnúmer 2010010001Vakta málsnúmer

Lögð fyrir og rædd drög að samstarfssamningi milli Akureyrarbæjar og Aflsins. Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti forsögu málsins og tildrög þess að nú er unnið að gerð formlegs samstarfssamnings.

Framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar falið að afla frekari gagna og umsagna frá skólanefnd og stjórn Akureyrarstofu og leggja málið fyrir að nýju síðar. Afgreiðslu frestað.

Fundi slitið - kl. 16:15.