Bæjarstjórn

3358. fundur 01. júlí 2014 kl. 16:00 - 18:57 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson
Starfsmenn
  • Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Dagskrá
Bjarki Ármann Oddsson S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

Í upphafi fundar bauð forseti bæjarfulltrúann Bjarka Ármann Oddsson velkominn á sinn fyrsta fund í bæjarsjórn.

1.Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal, deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2013010054Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 25. júní 2014:
Tekið fyrir að nýju eftir yfirferð Skipulagsstofnunar sem taldi sig ekki geta tekið afstöðu til deiliskipulagsbreytingarinnar fyrr en hávaði frá stækkuðu akstursíþróttasvæði hefði verið áætlaður. Sú áætlun liggur nú fyrir en Verkfræðistofan EFLA hefur unnið viðauka við fyrri hljóðskýrslu sem kallast Hávaðadreifing frá Endurobraut, dagsetta 25. júní 2014.
Í ljósi niðurstöðu hljóðskýrslunnar er varðar deiliskipulagsbreytingu á akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal vegna viðbótarsvæðis KKA, er gerð sú breyting að Endurobraut vestan nýs aðkomuvegar að svæðum Skotfélags og KKA er felld út, þar sem hún uppfyllir ekki kröfur um hljóðvist vegna frístundabyggðar í 2. áfanga Hálanda.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á deiliskipulagsuppdrætti dagsettum 25. júní 2014, og í greinargerð frá samþykkt bæjarstjórnar 21. janúar 2014.
1) Færðar hafa verið inn á uppdrátt hljóðmanir ofan viðbótarsvæðis KKA á móts við 1. áf. Hálanda til þess að uppfylla kröfur um hljóðstig.
2) Skástrikað svæði á uppdrætti sem sýnt er vestan nýs aðkomuvegar að svæði SA og KKA hefur verið fellt út og er nú skilgreint sem viðbótarsvæði KKA með þeim kvöðum að ekki megi nota það fyrir vélknúin farartæki.
3) Undirgöng undir nýjan aðkomuveg að svæði KKA og Skotsvæði hafa verið færð inn á uppdrátt.
4) Texta hefur verið breytt í greinargerð í samræmi við ofangreint, bæði í almennum skýringum og í umhverfisskýrslu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Sjónlistamiðstöðin á Akureyri - skipulag og þróun

Málsnúmer 2012040129Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 28. maí 2014:
Lögð fram til endanlegrar staðfestingar stjórnar samþykkt fyrir Sjónlistamiðstöðina á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða samþykkt fyrir Listasafnið á Akureyri með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst 2014

Málsnúmer 2014060210Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar Akureyrar 2014:
Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar samþykkir bæjarstjórn að frá 2. júlí til 31. ágúst 2014 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Umhverfismál

Málsnúmer 2014060208Vakta málsnúmer

Bæjarfulltrúi Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskaði eftir umræðu um umhverfismál á Akureyri.

Almennar umræður urðu í kjölfarið.

5.Samstarfssamningur Framsóknarflokksins, L-listans og Samfylkingarinnar 2014-2018

Málsnúmer 2014060211Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur Framsóknarflokksins, L-listans og Samfylkingarinnar um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Akureyrar á kjörtímabilinu 2014-2018.

Almennar umræður urðu um samstarfssamninginn.

Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar óskaði eftir að fá að taka til máls kl. 18:10 og tók Sigríður Huld Jónsdóttir 1. varaforseti við stjórn fundarins.
Kl. 18:18 tók Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar aftur við stjórn fundarins.

6.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 12., 19. og 25. júní 2014
Bæjarráð 26. júní 2014
Skipulagsnefnd 25. júní 2014
Stjórn Akureyrarstofu 24. júní 2014


Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 18:57.