Bæjarstjórn

3352. fundur 18. mars 2014 kl. 16:00 - 18:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Hlín Bolladóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson
  • Ólafur Jónsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga frá S-lista um breytingu á skipan aðalmanns í stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar svohljóðandi:
Jóhann Jónsson tekur sæti aðalmanns í stað Sveins Arnarssonar.

Einnig lögð fram tillaga frá D-lista um breytingu á skipan aðalmanns í kjörstjórn svohljóðandi:
Júlí Ósk Antonsdóttir tekur sæti aðalmanns í stað Baldvins Valdemarssonar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögurnar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Miðhúsabraut-Súluvegur - breyting á deiliskipulagi, HGH Verk ehf

Málsnúmer 2014010374Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 26. febrúar 2014:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi athafna-, verslunar- og þjónustusvæðis við Súluveg, dags. 24. febrúar 2014, unna af Árna Ólafssyni arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf.
Einungis er um að ræða minniháttar stækkun á byggingarreit til vesturs og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

Logi Már Einarsson S-lista sat hjá við afgreiðslu.

3.Hálönd - frístundabyggð, deiliskipulag 2. áfangi

Málsnúmer 2013080065Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. mars 2014:
Skipulagsstjóri lagði fram endurbætta tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga frístundabyggðar í Hálöndum, unna af Teiknum á lofti ehf og dags. 12. mars 2014.
Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sigurður Guðmundsson A-lista óskar bókað:
Deiliskipulagstillagan gengur verulega gegn upphaflegum hugmyndum. Stækkun 10 húsa um 60% tel ég ekki ásættanlega. Enn eru óleyst mál varðandi gatnagerðargjöld af byggingum í fyrri áfanga og engin lausn í sjónmáli. Það getur ekki verið eðlilegt að ekki séu greidd gatnagerðargjöld af framkvæmdunum. Því segir skynsemin að staldra skuli við. Þess vegna greiði ég atkvæði gegn þessari tillögu.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Logi Már Einarsson S-lista á því athygli að hann teldi  sig vanhæfan að fjalla um þennan lið.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarstjórn og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Logi Már Einarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

 

Bæjarstjórn samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 9 atkvæðum  gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

4.Hringteigur 2, VMA - skipulagslýsing

Málsnúmer 2012121230Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. mars 2014:
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags VMA var auglýst frá 13. mars til 2. apríl 2013. Ein umsögn barst frá Skipulagsstofnun dags. 27. mars 2013 en ekki var gerð athugasemd við lýsinguna.
Skipulagsstjóri lagði fram endurskoðaða tillögu að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags lóðar Verkmenntaskólans á Akureyri þar sem umfang og þörf skólahúsnæðis á lóðinni er meira en fyrri lýsing gerði ráð fyrir.
Skipulagslýsingin er dags. 20. febrúar 2014 og unnin af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi ehf og kom hann á fundinn og kynnti hana.
Skipulagsnefnd þakkar Ómari fyrir kynninguna og leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Miðbær Akureyrar, deiliskipulag norðurhluta - umsókn um breytingu á deiliskipulagi Glerárgötu 3, 5 og 7

Málsnúmer 2013090038Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. mars 2014:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta miðbæjar sem auglýst var frá 8. janúar til 19. febrúar 2014.
Deiliskipulagstillagan ásamt húsakönnun var unnin af Landslagi ehf og dags. 6. desember 2013.
Ein athugasemd barst frá Hagsmíði ehf dags. 10. febrúar 2014.
Hagsmíði bendir á að samkvæmt deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir að sá hluti lóðar Glerárgötu 3, sem tilheyri fyrirtækinu, verði notaður undir fyrirhugaðar framkvæmdir á "Sjallareit". Umræddur lóðarskiki er hluti af lóð Glerárgötu 3b sem tilheyrir Hagsmíði ehf samkvæmt þinglýstu afsali dags. 1. febrúar 1988. Einnig er bent á að fyrirtækið hefur samkvæmt sama afsali umferðarrétt á hluta lóðarinnar.
Svar við athugasemd:
Samkvæmt minnisblaði bæjarlögmanns dags. 26. febrúar 2014 aflaði lóðarhafi Glerárgötu 3b ekki samþykkis allra eigenda lóðarinnar Glerárgötu 3 þegar lóðarhlutanum var afsalað. Lóðarhafi Glerárgötu 3b hefur ekki haldið réttindum sínum frá 1988 til haga gagnvart skipulagsyfirvöldum, hvorki við þinglýsingu afsalsins né við gerð deiliskipulags 1996 og verður því að telja að umrædd breyting á lóðarmörkum, sem getið er í afsalinu, geti ekki leitt til þess að hann eigi tilkall til hluta lóðarinnar að Glerárgötu 3.
Skipulagsnefnd getur því ekki fallist á að hluti lóðarinnar Glerárgötu 3 sé hluti lóðar Glerárgötu 3b.
Tekið skal fram að á deiliskipulagsuppdrætti er skilgreindur umferðarréttur um lóð Glerárgötu 3 að lóð Glerárgötu 3b.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Logi Már Einarsson S-lista á því athygli að hann teldi  sig vanhæfan að fjalla um þennan lið.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarstjórn og var það samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.

Ólafur Jónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu.

Logi Már Einarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

 

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram tillögu um að fresta afgreiðslu málsins.

Tillagan var borin upp og felld með 7 atkvæðum gegn atkvæði Ólafs Jónssonar D-lista.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista og Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista sátu hjá við afgreiðslu.

 

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum.

Ólafur Jónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu.

6.Stöðuskýrsla nefnda - félagsmálaráð

Málsnúmer 2013090098Vakta málsnúmer

Dagur Fannar Dagsson formaður félagsmálaráðs gerði grein fyrir stöðuskýrslu nefndarinnar.

7.Ályktun um aðildarviðræður við ESB

Málsnúmer 2014030107Vakta málsnúmer

Logi Már Einarsson S-lista, Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista og Sigurður Guðmundsson A-lista lögðu fram eftirfarandi tillögu að bókun:

Bæjarstjórn Akureyrar skorar á Alþingi að tryggja þjóðinni rétt til að segja álit sitt á framhaldi aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Um leið er skorað á utanríkisráðherra að afturkalla þingsályktunartillögu sem gerir ráð fyrir því að Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka.
Þá tekur bæjarstjórn undir samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 28. febrúar sl., þar sem stjórnin hvetur til þess að Alþingi tryggi sveitarfélögum í landinu ráðrúm til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna málsins.
Í greinargerð sem unnin var fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga um áhrif Evrópusambandsaðildar á íslenska sveitarstjórnarstigið kemur fram að þau yrðu umtalsverð. Útilokað er að segja nákvæmlega fyrir um áhrifin fyrr en fullbúinn samningur liggur fyrir í lok aðildarviðræðna.
Bæjarstjórn Akureyrar áréttar að í þessu stóra hagsmunamáli er eðlilegt að þjóðin fái formlega aðkomu að ákvörðun um framhald þess.

 

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram frávísunartillögu og var hún felld með 3 atkvæðum gegn atkvæði Ólafs Jónssonar D-lista.

Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista, Halla Björk Reynisdóttir L-lista, Oddur Helgi Halldórsson L-lista, Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista, Hlín Bolladóttir L-lista, Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista og Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista sátu hjá við afgreiðslu.

 

Tillaga Loga Más Einarssonar S-lista, Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur V-lista og Sigurðar Guðmundssonar A-lista var síðan borin upp og var hún samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum. 

Ólafur Jónsson D-lista, Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista, Halla Björk Reynisdóttir L-lista, Oddur Helgi Halldórsson L-lista, Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista, Hlín Bolladóttir L-lista og Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista sátu hjá við afgreiðslu.

 

Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista óskaði bókað:

Ég tel rétt að styðja tillögu þessa í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp í kjölfar þingsályktunartillögu utanríkisráðherra og þeirrar ólgu sem myndast hefur innan þings og utan. Mikilvægt er að málið komist í farveg sem sátt geti skapast um og horft sé til þess að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir lok kjörtímbilsins þannig að skýr vilji þjóðar til áframhaldandi viðræðna liggi fyrir áður en gengið verður til þingkosninga á árinu 2017. 

 

Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista lagði fram bókun svohljóðandi: 

L-listinn, listi fólksins, hefur haft það að leiðarljósi að einbeita sér að verkefnum sem snúa beint að sveitarfélaginu. L-listinn telur umrætt mál vera málefni landstjórnarinnar og að stjórnsýsla sveitarfélaga eigi með orðum og gjörðum ekki að vera málsvari ákveðinna fylkinga innan sala Alþingis. Við fögnum borgaralegri þátttöku í stjórnmálaumræðu sem og ákvarðanatöku. L-listinn hefur alltaf haft það að leiðarljósi að vinna að samstöðu innan bæjarstjórnar Akureyrar og getur þess vegna aðeins beint þeim tilmælum til allra alþingismanna að finna málinu farveg sem yrði Alþingi og Íslendingum öllum til sóma.

8.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 20. og 27. febrúar og 6. mars 2014
Bæjarráð 20. og 27. febrúar, 6. og 13. mars 2014
Félagsmálaráð 26. febrúar og 12. mars 2014
Framkvæmdaráð 28. febrúar 2014
Íþróttaráð 20. febrúar 2014
Kjarasamninganefnd 14.

Fundi slitið - kl. 18:35.