Bæjarstjórn

3312. fundur 22. nóvember 2011 kl. 16:00 - 19:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Hlín Bolladóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Hermann Jón Tómasson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga L-listans um tímabundna breytingu á skipan varafulltrúa í stjórn Akureyrarstofu og skipan aðalfulltrúa í skólanefnd.

Stjórn Akureyrarstofu:
Hildur Tryggvadóttir tekur tímabundið sæti varamanns frá 22. nóvember 2011 til og með 30. apríl 2012 í stað Helgu Mjallar Oddsdóttur.

Skólanefnd:
Anna Sjöfn Jónasdóttir tekur sæti aðalmanns í stað Sigrúnar Bjarkar Sigurðardóttur.

 

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Aðalskipulag - Blöndulína 3. Akureyri - Krafla. Breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer SN080072Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 9. nóvember 2011:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á aðalskipulagi dags. 4. nóvember 2011 unna af Árna Ólafssyni arkitekt f.h. Teiknistofu arkitekta ehf.
Lagt er til að gerð verði aðalskipulagsbreyting á línuleið Blöndulínu 3 ofan Akureyrar, frá sveitarfélagsmörkum Hörgársveitar að fyrirhuguðu tengivirki við Kífsá og jarðstrengjaleið þaðan að Rangárvöllum.
Skipulagslýsing hefur verið auglýst og kynnt almenningi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Torfunef, Strandgata - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011110013Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 9. nóvember 2011:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Torfunefs - Strandgötu vegna lengingar á sjóvarnargarði. Tillagan er unnin af X2 hönnun og skipulagi ehf, dags. 4. nóvember 2011.
Þar sem einungis er um að ræða minniháttar lengingu á grjótvarnargarði við Torfunef og er breyting sem varðar Akureyrarbæ og umráðanda svæðisins sem er Hafnasamlag Norðurlands leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu.

4.Samþykkt um búfjárhald - fyrri umræða

Málsnúmer 2010080055Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 4. nóvember 2011:
Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála lagði fram drög að nýrri samþykkt um búfjárhald.
Framkvæmdaráð samþykkir nýja samþykkt um búfjárhald.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa samþykkt um búfjárhald til frekari yfirferðar í framkvæmdaráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012 - fyrri umræða

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 17. nóvember 2011:
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2012 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2012 til frekari yfirferðar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

6.Stefnuumræða í bæjarstjórn 2011 - íþróttaráð

Málsnúmer 2011030070Vakta málsnúmer

Starfsáætlun íþróttaráðs.
Í samræmi við 21. grein í Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar og samþykkt bæjarstjórnar frá 17. maí 2005 um þátttöku nefndarformanna utan bæjarstjórnar í bæjarstjórnarfundum mætti Nói Björnsson formaður íþróttaráðs og gerði grein fyrir starfsáætlun ráðsins.
Almennar umræður urðu í kjölfarið.

 

7.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 3., 10., 15. og 17. nóvember 2011
Stjórnsýslunefnd 2. nóvember 2011
Skipulagsnefnd 9. nóvember 2011
Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 2., 9. og 16. nóvember 2011
Framkvæmdaráð 4. nóvember 2011
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 4. nóv

Fundi slitið - kl. 19:30.