Bæjarstjórn

3296. fundur 18. janúar 2011 kl. 16:00 - 16:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Hlín Bolladóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Sigmar Arnarsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Heiða Karlsdóttir ritari bæjarstjóra
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði forseti bæjarstjórnar bæjarfulltrúum, starfsmönnum Akureyrarbæjar og bæjarbúum öllum gleðilegs árs og farsældar.

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Sjálfstæðisflokksins um breytingar á fulltrúa flokksins í félagsmálaráði:

Oktavía Jóhannesdóttir tekur sæti aðalmanns í félagsmálaráði í stað Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 328. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 22. desember 2010.
Fundargerðin er í 8 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á 1., 2., 3., 5., 7. og 8. lið. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.

Bæjarstjórn staðfestir 1., 2., 3., 5., 7. og 8. lið í fundargerð skipulagsstjóra dags. 22. desember 2010 með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 329. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 29. desember 2010.
Fundargerðin er í 1 lið. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á fundargerðinni.

Bæjarstjórn staðfestir fundargerð skipulagsstjóra dags. 29. desember 2010 með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 330. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 5. janúar 2011.
Fundargerðin er í 6 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á öllum liðum fundargerðarinnar.

Bæjarstjórn staðfestir fundargerð skipulagsstjóra dags. 5. janúar 2011 með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 331. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011.
Fundargerðin er í 9 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á 1., 2., 4., 6., 7., 8. og 9. lið. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.

Bæjarstjórn staðfestir 1., 2., 4., 6., 7., 8. og 9.  lið í fundargerð skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011 með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Hlíðarendi - verslunar- og þjónustusvæði - deiliskipulag

Málsnúmer 2010090138Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011:
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar og verslunar- og þjónustusvæðis 1. áfanga var auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu frá 20. október 2010 með athugasemdafresti til 1. desember 2010. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaði og Dagskránni.
Engar athugasemdir bárust.
Óskað var eftir umsögnum hagsmunaaðila í bréfi dags. 28. júlí 2010 þar sem send voru drög að deiliskipulagstillögunni. Umsagnir bárust frá sjö aðilum og hefur þeim verið svarað, sjá fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar sl.
Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Auður Jónasdóttir fulltrúi VG sat hjá við afgreiðslu.
Vísar að öðru leyti til fyrri bókana þar sem hún hvetur til að horft verði á Hlíðarfjall og Glerárdal sem eina heild við skipulagningu.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu.

7.Akureyrarflugvöllur - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2010040025Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011:
Tillagan var auglýst frá 1. september 2010 með athugasemdafresti til 13. október 2010. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu.
Engar athugasemdir bárust.
Umsögnum sem bárust hefur verið svarað, sjá fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar sl.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Jaðar golfvöllur - deiliskipulag

Málsnúmer 2009100092Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011:
Tillaga að deiliskipulagi golfvallarins við Jaðar samhliða aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingum fyrir Naustahverfi 2. áfanga og norðan Tjarnarhóls, var auglýst frá 13. október 2010 til 24. nóvember 2010. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu.
Tvær athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað, sjá fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011.
Ein umsögn barst þar sem engin athugasemd var gerð, sjá fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan þannig breytt verði samþykkt ásamt deiliskipulagsbreytingartillögum í Naustahverfi og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku þeirra.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2008-2011

Málsnúmer 2008090024Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dags. 12. janúar 2011:
Farið yfir stöðu verkefna í Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar og rætt um endurskoðun stefnunnar.
Samfélags- og mannréttindaráð leggur til við bæjarstjórn að ráðist verði í endurskoðun jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar í samræmi við ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu samfélags- og mannréttindaráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

10.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Lagður fram til staðfestingar samningur um:
Sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlaða dags. 22. desember 2010 sem sveitarstjórnir Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps gerðu með sér.

Bæjarstjórn samþykkir samninginn með 11 samhljóða atkvæðum.

11.Reglur um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2005110070Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

12.Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra

Málsnúmer 2010010042Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011, um breytingar á reglum um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

13.Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa

Málsnúmer 2010030022Vakta málsnúmer

9. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

 Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

14.Heimaþjónusta - reglur 2011

Málsnúmer 2011010049Vakta málsnúmer

10. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um heimaþjónustu, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

15.Skammtímavistun fyrir fatlað fólk - reglur 2011

Málsnúmer 2011010045Vakta málsnúmer

11. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Kristín Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um skammtímavistun, vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

16.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 6. og 13. janúar 2011
Skipulagsnefnd 17. desember 2010 og 12. janúar 2011
Framkvæmdaráð 17. desember 2010
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 17. desember 2010
Stjórn Akureyrarstofu 15. desember 2010
Skólanefnd 20. desember 2010

Fundi slitið - kl. 16:55.