Bæjarstjórn

3529. fundur 16. maí 2023 kl. 16:00 - 17:03 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar
  • Hlynur Jóhannsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Andri Teitsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Breytingar í nefndum 2022-2026 - bæjarráð

Málsnúmer 2022030877Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Brynjólfs Ingvarssonar (Ó) um breytingu á skipan fulltrúa í bæjarráði. Jón Hjaltason verði varaáheyrnarfulltrúi.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Hvannavellir 10-14 - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 2021120847Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 10. maí 2023:

Auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hvannavelli 10-14 lauk þann 31. janúar sl. Sex athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Norðurorku og Minjastofnun Íslands. Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs 12. apríl sl. Var afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa falið að skoða möguleika á tilfærslu fyrirhugaðrar spennistöðvar. Er tillaga skipulagsfulltrúa að svörum við efni athugasemda lögð fram ásamt deiliskipulagstillögunni þar sem m.a. er lagt til í samráði við Norðurorku að fallið verði frá uppsetningu spennistöðvar syðst á lóðarmörkum Hvannavalla 14 að svo stöddu.

Meirihluti skipulagsráðs leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi með breytingum eftir auglýsingu sem felast í því að spennistöð er felld út. Þá leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu skipulagsfulltrúa að svörum við efni athugasemda.

Jón Hjaltason óflokksbundinn greiðir atkvæði gegn tillögunni.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum framlagða tillögu að deiliskipulagi með breytingum eftir auglýsingu sem fela í sér að spennistöð er felld út. Þá samþykkir bæjarstjórn tillögu skipulagsfulltrúa að svörum við efni athugasemda.

Brynjólfur Ingvarsson (Ó) situr hjá.

3.Undirhlíð - breyting á deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts

Málsnúmer 2022100792Vakta málsnúmer

Liður 9 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 10. maí 2023:

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts vegna útfærslu á Undirhlíð og Krossanesbraut.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Undirhlíð - breyting á deiliskipulagi Holtahverfis norður

Málsnúmer 2022100752Vakta málsnúmer

Liður 10 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 10. maí 2023:

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis norður vegna útfærslu á Undirhlíð og Krossanesbraut.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Uppbygging á félagssvæði Knattspyrnufélags Akureyrar - KA

Málsnúmer 2021081217Vakta málsnúmer

Liður 6 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 11. maí 2023:

Liður 5 í fundargerð fræðslu- og lýðheilsuráðs dagsettri 8. maí 2023:

Lagður fram til kynningar samningur um uppbyggingu á félagssvæði Knattspyrnufélags Akureyrar.

Andri Teitsson formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fundinn undir þessum lið.

Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir samninginn við KA fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar honum til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Ellert Örn Erlingsson fostöðumaður íþróttamála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagðan samning um uppbyggingu á félagssvæði KA og vísar honum til umræðu í bæjarstjórn.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir situr hjá.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista óskar bókað:

Sit hjá vegna ófullnægjandi gagna. Ég er ekki á móti þessari viðbót við fyrrum uppbyggingarsamning, það eru ákveðin rök fyrir því að klára félagsaðstöðuna samhliða en ákvörðun um það verður að vera byggð á faglegri vinnu. Enn er mörgum spurning ósvarað. Það er óábyrg fjármálastjórnun að ekki liggi til grundvallar minnisblað um rekstrarkostnað og hvaða áhrif þessi fjárfesting hefur á aðrar áætlaðar fjárfestingar og getu til fjárfestinga á næstu árum. Eins sýnir það skort á faglegum vinnubrögðum að hvorki fylgi gögnunum þarfagreining né heildar framtíðarsýn á uppbyggingu íþróttamannvirkja. Fulltrúar B-lista hafa talað fyrir því fyrir síðustu kosningar að dusta rykið af umræðu um þriggja kjarna starfsemi og skipuleggja uppbyggingu á KA og Þórssvæðinu samhliða því, það á enn við.

Það er óásættanlegt að ekki sé tímasett í samningnum hvenær viðunandi frágangi eigi að ljúka né kostnaðargreining á því. 7. gr. um bindingu Akureyrarvallar samræmist ekki nýsamþykktri húsnæðisáætlun.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista óskar bókað:

Mér finnst skorta framtíðarsýn varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum og að horft sé til þess að við erum 20.000 manna sveitarfélag í því samhengi. Eins þarf að meta hvaða áhrif þessi samningur hefur á aðrar áætlaðar fjárfestingar sveitarfélagsins og fjárfestingar til framtíðar sem og að rekstrarkostnaður sé ljós.

Hilda Jana Gísladóttir S-lista óskar bókað:

Mikilvægt er að tryggja að úthlutun lóða á Akureyrarvelli geti átt sér stað í samræmi við húsnæðisáætlun árið 2026, til að tryggja sveitarfélaginu tekjur til að standa straum af hluta þess kostnaðar sem um ræðir. Þá er mikilvægt að vinna að nýrri áætlun um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja, enda ljóst að einnig er þörf á uppbyggingu mannvirkja annarra íþróttafélaga sveitarfélagsins. Þá er mikilvægt að horfa til heildarsamhengis í framkvæmdaáætlun næstu ára, enda töluverð þörf á uppbyggingu mannvirkja tengt öðrum málarflokkum, ekki síst á velferðar- og fræðslusviði.

Halla Björk Reynisdóttir L-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista og Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista óska bókað:

Ánægjulegt er að nú liggi fyrir samningur um uppbyggingu á KA svæðinu. Við teljum ekkert í samningnum koma í veg fyrir uppbyggingu á Akureyrarvelli og hann því í samræmi við nýsamþykkta húsnæðisáætlun.

Samningur er lagður fram til samþykktar í bæjarstjórn.

Andri Teitsson kynnti.

Til máls tóku Hilda Jana Gísladóttir, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Gunnar Már Gunnarsson, Andri Teitsson og Hlynur Jóhannsson.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og og Gunnar Már Gunnarsson B-lista leggja fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn vísar til bæjarráðs að koma á þverpólitískum vinnuhópi ásamt fulltrúum íþróttahreyfingarinnar sem heldur utan um það verkefni að skapa framtíðarsýn í íþróttamálum á Akureyri. Kanna fýsileika þess að taka aftur upp viðræður um þriggja kjarna uppbyggingu og skipuleggja uppbyggingu í samræmi við það. Fengin yrði verkfræðiskrifstofa til að kortleggja það húsnæði sem bærinn á, viðhaldsþörf og möguleikana á nýtingu þess. Í framhaldinu yrði unnin skýrsla um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri og ákjósanlega röðun samkvæmt fyrirfram ákveðnum breytum. Vinnuhópnum yrði gert að skila af sér lokaafurð til samþykktar fyrir vorið 2024.

Bæjarfulltrúar D-lista, L-lista, M-lista, S-lista og Brynjólfur Ingvarsson óflokksbundinn samþykkja uppbyggingarsamning á félagssvæði KA.


Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson B-lista og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista sitja hjá.


Tillaga fulltrúa B-lista var lögð fram til atkvæða. Fimm fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði með tillögunni, sex fulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði gegn tillögunni. Tillagan var felld.


Bæjarfulltrúar L-lista, D-lista og M-lista óska bókað:

Haustið 2019 kom út skýrsla vinnuhóps á vegum bæjarstjórnar Akureyrar um forgangsröðun við uppbyggingu íþróttamannvirkja. Brýnast var talið að reisa hús á félagssvæði Nökkva og er það nú tilbúið, númer tvö var frágangur á félagsaðstöðu í Skautahöllinni og eru þær framkvæmdir langt komnar.

Þriðja verkefnið var keppnisvöllur fyrir knattspyrnu ásamt stúku á KA-svæðinu og voru nokkrar veigamiklar ástæður fyrir að það verkefni raðaðist svo framarlega, þar á meðal mikill fjöldi iðkenda, fjölgun fólks í Nausta- og Hagahverfi, og að með þessu mætti losa um Akureyrarvöll og byrja að skipuleggja uppbyggingu þar. Um nýja knattspyrnuvöllinn og stúkuna var gerður samningur í desember 2021. Framkvæmdir við knattspyrnuvöllinn eru vel á veg komnar og verður hægt að byrja að nota hann núna á miðju sumri.

Með þeim samningi sem liggur hér fyrir okkur í dag er tekin inn til viðbótar sú framkvæmd sem raðaðist í fjórða sæti í forgangs-skýrslunni frá 2019, það er félagsaðstaða, búningsklefar og æfingaaðstaða á KA-svæðinu.

Það er trú okkar að þessi uppbygging á KA-svæðinu verði til mikilla heilla fyrir íþróttastarf á Akureyri bæði fyrir börn og unglinga og afreksfólk og viljum við óska öllum Akureyringum til hamingju með þennan stóra áfanga.


Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista óskar bókað:

Það skortir framtíðarsýn varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum og að horft sé til þess að Akureyrarbær er 20.000 manna sveitarfélag í því samhengi. Nauðsynlegt er að gerð verði þarfagreining fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkja hjá Akureyrarbæ sem og að mörkuð verði framtíðarsýn um íþróttamál bæjarins.

6.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2023010626Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 4. og 11. maí 2023
Bæjarráð 4. og 11. maí 2023
Fræðslu- og lýðheilsuráð 8. maí 2023
Skipulagsráð 10. maí 2023
Umhverfis- og mannvirkjaráð 2. maí 2023

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 17:03.