Bæjarstjórn

3508. fundur 15. mars 2022 kl. 16:00 - 17:17 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022 - viðauki

Málsnúmer 2021030524Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 10. mars 2022:

Lagður fram viðauki 1.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðauka 1 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka 1 með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Hlíðarfjallsvegur - deiliskipulag gagnavers og athafnalóða

Málsnúmer 2021090194Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. mars 2022:

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnalóðir sunnan Hlíðarfjallsvegar. Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 4. mars. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun og Vegagerðinni.

Meirihluti skipulagsráðs leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillöguna og að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Arnfríður Kjartansdóttir V-lista situr hjá við afgreiðslu málsins og óskar bókað að það sé of snemmt að ákveða núna hvaða starfsemi verður á umræddu athafnasvæði.

Þórhallur Jónsson kynnti tillögu skipulagsráðs. Í umræðum tóku til máls Hilda Jana Gísladóttir, Þórhallur Jónsson, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Sóley Björk Stefánsdóttir.
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnalóðir sunnan Hlíðarfjalls og að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista situr hjá við afgreiðsluna.

3.Starfsáætlanir ráða 2022 - velferðarráð

Málsnúmer 2021080829Vakta málsnúmer

Rætt um starfsáætlun velferðarráðs fyrir árið 2022.

Heimir Haraldsson kynnti áætlunina. Í umræðum tóku til máls Lára Halldóra Eiríksdóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Hilda Jana Gísladóttir, Gunnar Gíslason, Halla Björk Reynisdóttir og Heimir Haraldsson.

4.Umferðaröryggismál á Akureyri

Málsnúmer 2022021207Vakta málsnúmer

Umræða um umferðaröryggismál á Akureyri.

Málshefjandi var Hilda Jana Gísladóttir sem reifaði málið og lagði fram tillögu að bókun. Auk hennar tók Andri Teitsson til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að hefja undirbúning að gerð umferðaröryggisáætlunar og felur skipulagsfulltrúa og umhverfis- og mannvirkjasviði að leggja fram tillögu að framkvæmd hennar ásamt kostnaðaráætlun.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 2. og 10. mars 2022
Bæjarráð 3. og 10. mars 2022
Fræðslu- og lýðheilsuráð 7. mars 2022
Skipulagsráð 9. mars 2022
Umhverfis- og mannvirkjaráð 22. febrúar 2022

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 17:17.