Bæjarstjórn

3500. fundur 19. október 2021 kl. 16:00 - 16:52 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista sat fundinn í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka á dagskrá 4 liði sem varða breytingar í nefndum og yrðu liðir 3 og 6-8 á dagskránni. Var það samþykkt samhljóða.

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - lausnarbeiðni

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Berglindar Óskar Guðmundsdóttur varabæjarfulltrúa D-lista dagsett 7. október 2021 þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrarbæjar og öðrum störfum á vegum bæjarins vegna starfa á öðrum vettvangi.
Bæjarstjórn samþykkir lausnarbeiðnina með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - lausnarbeiðni

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Rósu Njálsdóttur varabæjarfulltrúa M-lista dagsett 14. október 2021 þar sem hún tilkynnir afsögn sína sem fulltrúi Miðflokksins í ráðum og stjórnum á vegum bæjarins, m.a. sem varafulltrúi í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir lausnarbeiðnina með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl:

3.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - lausnarbeiðni

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Elíasar Gunnars Þorbjörnssonar dagsett 18. október 2021 þar sem hann biðst undan því að taka sæti varabæjarfulltrúa D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir lausnarbeiðnina með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Kosning bæjarráðs til eins árs

Málsnúmer 2018060035Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga M-lista um að Karl Liljendal Hólmgeirsson verði varafulltrúi í bæjarráði til loka kjörtímabils í stað Rósu Njálsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - fræðsluráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga M-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði.

Hlynur Jóhannsson verði aðalfulltrúi í stað Rósu Njálsdóttur.

Viðar Valdimarsson verði varafulltrúi í stað Hlyns Jóhannssonar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - fræðsluráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði:

Heiðrún Ósk Ólafsdóttir verði varafulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í stjórn Akureyrarstofu:

Ásgeir Örn Blöndal verði aðalfulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.

Lára Halldóra Eiríksdóttir verði varafulltrúi í stað Ásgeirs Arnar Blöndal.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra:

Jóhann Gunnar Kristjánsson verði aðalfulltrúi í stað Önnu Rósu Magnúsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - ársþing SSNE

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingar á skipan varafulltrúa á ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra:

Þórunn Sif Harðardóttir verði varafulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Karl Liljendal Hólmgeirsson verði varafulltrúi í stað Rósu Njálsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

10.Hlíðarfjall - gjaldskrá

Málsnúmer 2020090392Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 14. október 2021:

Rætt um drög að gjaldskrá Hlíðarfjalls.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti tillöguna
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána með 11 samhljóða atkvæðum.

11.Skilgreining á svæðisbundnu hlutverki Akureyrar

Málsnúmer 2020090730Vakta málsnúmer

Rætt um skýrslu starfshóps um skilgreiningu á svæðisbundnu hlutverki Akureyrar.

Í umræðum tóku til máls Hilda Jana Gísladóttir, Gunnar Gíslason, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Sóley Björk Stefánsdóttir, Andri Teitsson, Hilda Jana Gísladóttir, Gunnar Gíslason og Halla Björk Reynisdóttir.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar tekur undir niðurstöður starfshóps sem skipaður var til að skilgreina svæðisbundið hlutverk Akureyrar og þá aðaltillögu sem var þar lögð fram. Þá lýsir bæjarstjórn yfir ánægju sinni með markmið C4 „Borgarstefna“ í hvítbók um byggðamál og hvetur Alþingi til að samþykkja markmiðið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til að hefja hið fyrsta vinnu við umrædda heildarstefnu í samvinnu við Akureyrarbæ og SSNE.

12.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2021010534Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 7. og 14. október 2021
Bæjarráð 4. og 14. október 2021
Frístundaráð 12. október 2021
Fræðsluráð 4. október 2021
Skipulagsráð 13. október 2021
Stjórn Akureyrarstofu 12. október 2021
Umhverfis- og mannvirkjaráð 1. október 2021
Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:52.