Bæjarstjórn

3470. fundur 17. mars 2020 kl. 16:00 - 16:26 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista mætti í forföllum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.
Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.

Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka af dagskrá 6. lið í auglýstri dagskrá, 2020030426 - Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Var það samþykkt samhljóða.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020 - viðauki

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Liður 4 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 5. mars 2020:

Lagður fram viðauki 2.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðauka 2 að fjárhæð 15 milljónir króna og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti efni viðaukans.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Mannréttindastefna 2020-2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 12. mars 2020:

Liður 6 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 19. febrúar 2020:

Mannréttindastefna Akureyrarbæjar lögð fram til samþykktar.

Frístundaráð samþykkir framlagða mannréttindastefnu og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.

Málið var á dagskrá bæjarráðs 27. febrúar og 5. mars sl. og var afgreiðslu frestað í bæði skiptin.

Bæjarráð vísar mannréttindastefnu 2020-2023 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Andri Teitsson kynnti stefnuna.
Bæjarstjórn samþykkir mannréttindastefnu Akureyrarbæjar 2020-2023 með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) - reglur

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Liður 5 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 12. mars 2020:

Liður 1 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 4. mars 2020:

Lögð fram að nýju drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð eftir umsagnarferli hjá notendaráði í málaflokki fatlaðra.

Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.

Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs, Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Heimir Haraldsson kynnti reglurnar.
Bæjarstjórn samþykkir reglur um notendastýrða persónulega aðstoð með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Sundlaug Akureyrar - afsláttur fyrir hópa

Málsnúmer 2020010358Vakta málsnúmer

Liður 6 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 12. mars 2020:

Liður 2 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 4. mars 2020:

Lögð fram til umræðu afsláttarkjör til hópa í Sundlaug Akureyrar sem voru samþykkt á fundi íþróttaráðs 6. desember 2012.

Frístundaráð samþykkir tillögu forstöðumanns um afsláttarkjör fyrir hópa og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarráði og bæjarstjórn.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tillögu um afsláttarkjör fyrir hópa og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að fella afsláttarkjörin inn í gjaldskrá og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti tillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu um breytingu á gjaldskrá Sundlaugar Akureyrar um afsláttarkjör fyrir hópa með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Viðbrögð Akureyrarbæjar vegna COVID-19 faraldurs

Málsnúmer 2020030398Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri kynnti þær aðgerðir sem Akureyrarbær hefur gripið til vegna COVID-19 faraldurs.

6.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Í lok fundar sagði forseti frá boðuðum breytingum á sveitarstjórnarlögum. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild að til víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku.
Forseti tilkynnti að boðaður verður aukafundur í bæjarstjórn ef frumvarpið verður samþykkt. Á þeim fundi yrði lögð fram tillaga um heimild til tímabundinna breytinga á fyrirkomulagi funda bæjarstjórnar og fastanefnda á meðan neyðarástand almannavarna varir.

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:
Bæjarráð 5. og 12. mars 2020
Frístundaráð 4. mars 2020
Fræðsluráð 2. mars 2020
Skipulagsráð 11. mars 2020
Umhverfis- og mannvirkjaráð 6. mars 2020
Velferðarráð 4. mars 2020
Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:26.