Bæjarstjórn

3416. fundur 06. júní 2017 kl. 16:00 - 16:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir 1. varaforseti
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Víðir Benediktsson
  • Baldvin Valdemarsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista mættir í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.
Víðir Benediktsson L-lista mætti í forföllum Silju Daggar Baldursdóttur.

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018

Málsnúmer 2014060234Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Æ-lista um breytingu á skipan varafulltrúa í velferðarráði:

Brynhildur Pétursdóttir verður varafulltrúi í stað Valbjörns Helga Viðarssonar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Vinnureglur um bílastæði og úrtök í kantsteina

Málsnúmer 2016100112Vakta málsnúmer

21. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 31. maí 2017:

Sviðsstjóri skipulagssviðs lagði fram drög að vinnureglum um bílastæði og úrtök úr kantsteinum.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að framlagðar vinnureglur verði samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantsteina með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl:

3.Kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs 2017-2018

Málsnúmer 2017010122Vakta málsnúmer

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.

Við kosningu forseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Matthías Rögnvaldsson 9 atkvæði, 2 seðlar voru auðir.


Lýsti forseti Matthías Rögnvaldsson réttkjörinn forseta bæjarstjórnar til eins árs.


2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.

Við kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Sigríður Huld Jónsdóttir 8 atkvæði, Sóley Björk Stefánsdóttir 1 atkvæði, 2 seðlar voru auðir.


Lýsti forseti Sigríði Huld Jónsdóttur réttkjörna sem 1. varaforseta.


Við kosningu 2. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Gunnar Gíslason 10 atkvæði, 1 seðill var auður.


Lýsti forseti Gunnar Gíslason réttkjörinn sem 2. varaforseta.


3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:


Ingibjörg Ólöf Isaksen

Preben Jón Pétursson


og varamanna:


Silja Dögg Baldursdóttir

Sóley Björk Stefánsdóttir


Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Kosning bæjarráðs til eins árs 2017-2018

Málsnúmer 2017010123Vakta málsnúmer

Kosning bæjarráðs til eins árs - 5 aðalmenn og 5 til vara.
Fram kom listi með nöfnum þessara aðalmanna:


Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður

Sigríður Huld Jónsdóttir varaformaður

Matthías Rögnvaldsson

Gunnar Gíslason

Sóley Björk Stefánsdóttir

Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi


og varamanna:


Ingibjörg Ólöf Isaksen

Dagbjört Elín Pálsdóttir

Silja Dögg Baldursdóttir

Eva Hrund Einarsdóttir

Edward Hákon Huijbens

Þorsteinn Hlynur Jónsson varaáheyrnarfulltrúi


Bæjarstjórn samþykkir tillöguna sem fram kom á listanum með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017 - viðauki 5

Málsnúmer 2016050137Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 18. maí 2017:

Lagður fram viðauki 5.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka 5 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka 5 með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Endurmælingar - gjaldskrá 2017

Málsnúmer 2017050006Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 18. maí 2017:

5. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsett 12. maí 2017:

Lögð fram gjaldskrá fyrir endurmælingu bygginga og lóða fyrir árið 2017.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá fyrir endurmælingu bygginga og lóða fyrir árið 2017 og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir gjaldskrána með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst - 2017

Málsnúmer 2017010125Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar 2017:

Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar samþykkir bæjarstjórn að frá og með 1. júlí til og með 31. ágúst 2017 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:


Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 18. og 26. maí og 1. júní 2017
Bæjarráð 18. maí og 1. júní 2017
Frístundaráð 19. maí 2017
Fræðsluráð 22. maí 2017
Skipulagsráð 24. og 31. maí 2017
Stjórn Akureyrarstofu 1. júní 2017
Umhverfis- og mannvirkjaráð 19. maí 2017
Velferðarráð 24. maí 2017

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 16:30.