Bæjarráð

3402. fundur 20. febrúar 2014 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar.

1.Landsmót kvennakóra á Akureyri 2014 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013100090Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 13. febrúar 2014:
Tekin fyrir að nýju styrkbeiðni vegna Landsmóts kvennakóra á Íslandi sem haldið verður á Akureyri 9.- 11. maí 2014.
Stjórn Akureyrarstofu telur rétt að leitað verði leiða til að styðja við framkvæmd landsmótsins. Vegna umfangs verkefnisins óskar stjórnin eftir að bæjarráð taki umsóknina til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 500.000.  Færist af styrkveitingum bæjarráðs.

2.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 251. fundar stjórnar Eyþings dags. 29. janúar 2014.
Fundargerðina má finna á slóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1

3.Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014020106Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir aðalfundar hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dags. 12. september 2013 ásamt fundargerð 48. fundar hverfisnefndar dags. 6. janúar 2014.
Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:\ https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi

 

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2013-2014

Málsnúmer 2013100131Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 13. febrúar 2014. Fundargerðin er í 2 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið b), e) og f) og 2. lið til framkvæmdadeildar og 1. lið c) og d) til skipulagsdeildar.

1. liður a) er lagður fram til kynningar í bæjarráði.

5.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 76. fundar, aðalfundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 5. febrúar 2014 auk skýrslu stjórnar. Fundargerðina má finna á slóðinni: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

 

6.Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2014020004Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dags. 14. febrúar 2014:
Kynnt tillaga að nýju starfi forstöðumanns á fjölskyldudeild sem samþykkt var í félagsmálaráði 13. febrúar 2014.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla á fjölskyldudeild verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.

Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar.

7.Hrísey - atvinnumál

Málsnúmer 2014020149Vakta málsnúmer

Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af því ótrygga atvinnuástandi sem íbúar Hríseyjar búa við. Mikilvægt er að grípa til bráðaaðgerða til að bregðast við því áfalli að Útgerðarfélagið Hvammur hafi sagt upp öllu sínu starfsfólki. Þá er afar brýnt að halda áfram markvissri vinnu til að tryggja blómlegt mannlíf í eynni til lengri tíma litið.

Fundi slitið - kl. 11:00.