Bæjarráð

3386. fundur 24. október 2013 kl. 09:00 - 11:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson varaformaður
  • Hlín Bolladóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Hlín Bolladóttir L-lista mætti í forföllum Höllu Bjarkar Reynisdóttur.
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti ekki á fundinn.

Hlín Bolladóttir mætti á fundinn kl. 09:08.

1.Fráveita Akureyrarbæjar - flutningur til Norðurorku

Málsnúmer 2013100211Vakta málsnúmer

Rætt um hugsanlega sölu á fráveitu Akureyrarbæjar til Norðurorku hf.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi bæjarins mættu á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarfulltrúunum Oddi Helga Halldórssyni L-lista og Guðmundi Baldvini Guðmundssyni B-lista, ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra að vinna áfram að málinu.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

3.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2013/2014

Málsnúmer 2013090135Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 16. október 2013 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014, 173 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 17 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.
Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 1. nóvember 2013.

4.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2013

Málsnúmer 2013010076Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 67. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 1. október 2013.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2012-2013

Fundi slitið - kl. 11:55.