Bæjarráð

3378. fundur 29. ágúst 2013 kl. 08:00 - 09:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti í forföllum Ólafs Jónssonar.

1.Íslendingafélagið í Curitiba í Brasilíu - væntanleg heimsókn

Málsnúmer 2013010136Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 21. júní sl. frá formanni Íslendingafélagsins í Curitiba í Brasilíu.

2.Hagsmunasamtök heimilanna - styrkbeiðni 2013

Málsnúmer 2013080171Vakta málsnúmer

Erindi dags. 19. ágúst 2013 frá Hagsmunasamtökum heimilanna þar sem óskað er eftir styrk vegna tveggja kostnaðarsamra mála sem Hagsmunasamtökin reka nú fyrir dómstólum.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

3.Íþróttabandalag Akureyrar - íþróttasaga Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013070154Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 22. ágúst 2013:
Tekið fyrir að nýju erindi dags. 8. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi til að hefja vinnu við að skrifa og gefa út íþróttasögu Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð tekur vel í erindið og vísar því til bæjarráðs.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

4.Evrópsk lýðræðisvika

Málsnúmer 2013080196Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 23. ágúst 2013 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram kemur að Evrópuráðið hafi undanfarin ár hvatt sveitarfélög í aðildarríkjum sínum til að skipuleggja lýðræðisviku í kringum 15. október. Áhersla ársins í ár er virk þátttaka íbúa í sveitarstjórnarmálum og kosningum til sveitarstjórna.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti á fundinn kl. 08:25.

5.Glerárgata 20 - gatnagerðargjöld

Málsnúmer 2013080199Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. ágúst 2013 frá Arinbirni Þórarinssyni f.h. Þorps ehf þar sem fyrirtækið óskar eftir því að verða losað undan kvöð um greiðslu bílastæðagjalds að uppfylltum öllum skilyrðum vegna þeirrar viðbyggingar sem búið er að gefa leyfi fyrir. Um leið er óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um frekari breytingar á lóð.

Bæjarráð hafnar beiðni Þorps ehf um undanþágu á greiðslu bílastæðagjalds og vísar erindinu að öðru leyti til skipulagsdeildar.

6.Íbúafundur í Hrísey - 2013

Málsnúmer 2013080198Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Ingimari Ragnarssyni, dags. 23. ágúst 2013, þar sem segir að ákveðið hafi verið að halda íbúafund í íþróttamiðstöðinni í Hrísey laugardaginn 14. september nk. kl. 12:00, um möguleika í uppbyggingu atvinnumála í eyjunni.

7.Almenningssamgöngur á Norðausturlandi

Málsnúmer 2013070128Vakta málsnúmer

Umræður um almenningssamgöngur á Norðausturlandi.

Fundi slitið - kl. 09:45.