Bæjarráð

3351. fundur 20. febrúar 2013 kl. 15:00 - 16:33 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kolbrún Erna Magnúsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Launakönnun 2012 - unnin af RHA

Málsnúmer 2012110023Vakta málsnúmer

Á sameiginlegum fundi bæjarráðs, kjarasamninganefndar og samfélags- og mannréttindaráðs kynnti Hjördís Sigursteinsdóttir sérfræðingur hjá RHA niðurstöður launakönnunar sem gerð var í nóvember 2012 hjá Akureyrarbæ.

Bæjarráð, kjarasamninganefnd og samfélags- og mannréttindaráð fagna því að launakönnunin hafi nú litið dagsins ljós. Niðurstöðurnar sýna að konur eru með 3,9% lægri heildarlaun en karlar og 1,5% lægri dagvinnulaun að teknu tilliti til áhrifaþátta. Ánægjulegt er að sjá að bilið milli meðalheildarlauna kvenna og karla er að minnka á milli úttekta.

Nefndirnar hafa ákveðið að stofna vinnuhóp sem hefur það hlutverk að greina ástæður þess að munur mælist á launum kynjanna og gera tillögur að úrbótum. Vinnuhópurinn verður skipaður einum fulltrúa úr hverju ráði/nefnd ásamt starfsmannastjóra og jafnréttisráðgjafa.

Fundi slitið - kl. 16:33.