Bæjarráð

3780. fundur 15. september 2022 kl. 08:00 - 08:55 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Heimir Örn Árnason
  • Hlynur Jóhannsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2022 - árshlutauppgjör

Málsnúmer 2022090397Vakta málsnúmer

Lagt fram árshlutauppgjör janúar-júní 2022.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristjana Hreiðarsdóttir aðalbókari sátu fund bæjarráðs undir þessum lið. Gunnar Már Gunnarsson sat fundinn undir þessum lið og þá var Hulda Elma Eysteinsdóttir í fjarfundi.
Bæjarráð vísar árshlutauppgjöri til umræðu í bæjarstjórn.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022-2025 - viðauki

Málsnúmer 2021030524Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 6.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir viðauka 6 upp á kr. 8.000.000 vegna framkvæmda við ljósleiðara til Hríseyjar og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Krossanesbraut 0 - Lundeyri - uppkaup vegna skipulags

Málsnúmer 2021120855Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð Akureyrarbæjar dagsett 7. september 2022 varðandi kaup á Lundeyri við Krossanesbraut á Akureyri.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir kaup á Lundeyri vegna skipulags og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að ganga frá kaupunum.

4.Lóð Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO)

Málsnúmer 2020090447Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá BSO dagsett 30. ágúst 2022 þar sem óskað er eftir áframhaldandi framlengingu á stöðuleyfi stöðvarinnar við Strandgötu.
Bæjarráð samþykkir að veitt verði framlenging á stöðuleyfi stöðvarinnar til 31. maí 2023.

5.Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022031302Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 277. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 30. ágúst 2022.

6.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022010393Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 26. ágúst 2022.

Fundi slitið - kl. 08:55.