Bæjarráð

3660. fundur 07. nóvember 2019 kl. 08:15 - 10:54 Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Andri Teitsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Andri Teitsson L-lista mætti í forföllum Höllu Bjarkar Reynisdóttur.

1.Hlíðarfjall - rekstur

Málsnúmer 2019070527Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um áætlun þess efnis að breyta rekstri Hlíðarfjalls sem hefur verið A-hluta fyrirtæki í B-hluta fyrirtæki.

Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs, Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að breyta rekstri Hlíðarfjalls frá 1. janúar 2020 í B-hluta fyrirtæki með þriggja manna stjórn og felur bæjarstjóra að vinna að nauðsynlegum skipulagsbreytingum vegna þessa. Bæjarráð vísar þessari bókun til bæjarstjórnar.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2019

Málsnúmer 2019040448Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar níu mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Hönnunarstaðall Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018100303Vakta málsnúmer

Kynnt drög að hönnunarstaðli og uppfærðum reglum um merki bæjarins.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010399Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 875. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 25. október 2019.

Fundargerðina má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

Fundi slitið - kl. 10:54.