Bæjarráð

3625. fundur 31. janúar 2019 kl. 08:15 - 10:55 Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá mál sem ekki var í fundarboði, 2019010378 - Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin, og var það samþykkt.

1.Brothættar byggðir

Málsnúmer 2015070054Vakta málsnúmer

Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri Brothættra byggða í Grímsey og Hrísey mætti á fund bæjarráðs og fór yfir stöðu verkefnanna.

2.Skráning trúnaðarstarfa kjörinna fulltrúa og birting á heimasíðu bæjarins

Málsnúmer 2019010344Vakta málsnúmer

Rætt um samantekt upplýsinga um trúnaðarstörf kjörinna fulltrúa fyrir Akureyrarbæ og birtingu slíkra upplýsinga á vefsíðu bæjarins.

3.Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur

Málsnúmer 2016120021Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 9. janúar 2019:

Lögð fram drög að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

Áður á dagsskrá 19. febrúar og 2. mars 2018.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð samþykkir einróma framlagðar tillögur að breytingum.
Afgreiðslu frestað.

4.Straumlínustjórnun - Lean, staða innleiðingar

Málsnúmer 2019010276Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs mætti á fund bæjarráðs og fór yfir minnisblað um stöðu innleiðingar straumlínustjórnunar á stjórnsýslusviði, skrifstofu fræðslusviðs og Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi.
Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram við innleiðingu straumlínustjórnunar og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að leggja uppfærða innleiðingaráætlun fyrir bæjarráð fyrir marslok.

5.Vísindavika norðurslóða 2020

Málsnúmer 2019010331Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2019 frá Þorsteini Gunnarssyni sérfræðingi hjá Rannsóknamiðstöð Íslands og Guðrúnu Rósu Þórsteinsdóttur forstöðumanni Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri f.h. skipuleggjenda Vísindaviku norðurslóða sem haldin verður á Akureyri 27. mars - 2. apríl 2020. Óskað er eftir samstarfi og stuðningi Akureyrarbæjar við framkvæmd vísindavikunnar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar og felur jafnframt bæjarstjóra að ræða við bréfritara um nánari útfærslu.

6.Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin

Málsnúmer 2019010378Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. janúar 2019 frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem hún hvetur sveitarfélög til að kynna sér og taka þátt í að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um sjálfbæra þróun sem samþykkt voru einróma af aðildarríkjum SÞ árið 2015. Með aðild sinni hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að vinna að markmiðunum fram til ársins 2030, bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Samband íslenskra sveitarfélaga á fulltrúa í verkefnastjórn um innleiðingu markmiðanna.

Fyrsta kynning á sveitarfélögunum og heimsmarkmiðunum fer fram á Grand hóteli í Reykjavík 15. febrúar nk.

Fundi slitið - kl. 10:55.