Atvinnumálanefnd

4. fundur 20. maí 2015 kl. 13:00 - 14:45 Fundarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson formaður
  • Jóhann Jónsson
  • Erla Björg Guðmundsdóttir
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Dagskrá

1.Atvinnumálanefnd - kynjuð fjárhagsáætlun

Málsnúmer 2015040049Vakta málsnúmer

Rætt um möguleg verkefni atvinnumálanefndar í tengslum við kynjaða fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins.
Atvinnumálanefnd samþykkir að farið verði í tvö verkefni sem tengjast kynjaðari fjárhagsáætlun. Annars vegar verður skoðuð kynjaskipting eigenda/stofnenda fyrirtækja á Akureyri og hins vegar greina stöðu kynja hvað varðar úthlutanir á viðurkenningum frá atvinnumálanefnd. Atvinnufulltrúa falið að hefja gagnasöfnun og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

2.Reglur um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki

Málsnúmer 2003010019Vakta málsnúmer

Farið var yfir reglur um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki sem hafa verið í gildi hjá Akureyrarkaupstað frá árinu 2003, þá var sömuleiðis farið yfir þau fyrirtæki sem hafa fengið stuðning.
Atvinnufulltrúa falið að afla upplýsinga í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir síðar.

3.Vistorka

Málsnúmer 2015030145Vakta málsnúmer

Rætt var um stofnun Vistorku á vegum Norðurorku. Guðmundur Haukur Sigurðarson nýráðinn framkvæmdastjóri Vistorku mætti á fundinn kl. 14.00.
Atvinnumálanefnd fagnar stofnun Vistorku og þakkar Guðmundi Hauki fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 14:45.