Atvinnumálanefnd

18. fundur 02. mars 2016 kl. 16:00 - 18:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson formaður
  • Jóhann Jónsson
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Stefán Guðnason
Starfsmenn
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Dagskrá
Hildur Friðriksdóttir V-lista mætti í forföllum Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.
Erla Björg Guðmundsdóttir B-lista boðaði forföll sín og varamanns.

1.Brothættar byggðir

Málsnúmer 2015070054Vakta málsnúmer

Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri brothættra byggða mætti til fundarins og kynnti stöðu verkefnanna, auk þess að fara yfir með nefndinni drög að stefnumótun fyrir Hrísey sem kynnt verður fyrir íbúum í Hrísey á íbúafundi þann 9. mars nk.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mætti einnig á fundinn undir þessum lið.
Atvinnumálanefnd þakkar Helgu Írisi fyrir kynninguna.

2.Starfsáætlanir atvinnumálanefndar

Málsnúmer 2015020154Vakta málsnúmer

Farið var yfir og unnið í starfsáætlun nefndarinnar 2016.

3.Frumkvöðlasetur á Akureyri

Málsnúmer 2015110232Vakta málsnúmer

Rætt um möguleika í tengslum við húsnæðismál frumkvöðlaseturs á Akureyri.
Verkefnastjóra atvinnumála falið að ræða við Fasteignir Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 18:00.