Atvinnumálanefnd

17. fundur 24. febrúar 2016 kl. 16:00 - 18:15 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson formaður
  • Erla Björg Guðmundsdóttir
  • Jóhann Jónsson
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Stefán Guðnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Dagskrá
Stefán Guðnason áheyrnarfulltrúi Æ-lista mætti í forföllum Margrétar Kristínar Helgadóttur.

1.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir

Málsnúmer 2016020127Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Magnús Kristjánsson frá KPMG mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu vinnu aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.

2.Vinnufundir atvinnumálanefndar

Málsnúmer 2016020212Vakta málsnúmer

Haldið var áfram vinnu við yfirferð á verkefnum Atvinnustefnu Akureyrar og unnið að starfsáætlun nefndarinnar 2016.

3.Frumkvöðlasetur á Akureyri

Málsnúmer 2015110232Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að samningi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og minnisblað dagsett 23. febrúar 2016 í tengslum við húsnæðismál frumkvöðlaseturs.
Atvinnumálanefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Atvinnufulltrúa falið að afla nánari upplýsinga í tengslum við húsnæðið.

Fundi slitið - kl. 18:15.